Æskan - 01.06.1990, Qupperneq 22
Ljósmyndasamkeppni
/lí s k ti iii v ■■ cl i 1*
Við minnum á ljósmyndasamkeppnina sem kynnt var í 5. tbl. Æskunnar.
Samkeppnin nefnist Æskumyndir. Allir lesendur Æskunnar, 16 ára og yngri, geta
tekið þátt í henni. Þeir verða að segja til um aldur og rita nafn og póstfang skýrt og
greinilega. Foreldri verður að staðfesta að sendandi hafi tekið myndina. Myndefni er
frjálst. Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal.
/
Skilafrestur er til 1. september. Urslit verða tilkynnt í 8. tbl. Æskunnar en það keniur
út í september. Verðlaunamyndir verða birtar í 8. og 9. tbl. Myndir verða
endursendar.
ílrvals ljósmyndavélar í verðlaun
1. verðlaun: Pentax Zoom 60
2. -3. verðlaun: Fuji DL-60
4.-10. verðlaun: Þrjár útgáfubækur Æskunnar að eigin vali*
Myndavélarnar eru af viðurkenndum gæðategundum. Þær eru alsjálfvirkar (mæla
fjarlægð og birtu og stilla ljósop ...) með innbyggðu leifturljósi og filmuvindu.
Filmustærð er 35 mm.
Pentax-vélin er með aðdráttarlinsu, 38-60 mm, og tryggir einnig gæði í töku
nærmynda, að 0.6 m. Einfalt er að koma filmu fyrir í vélunum - í Fuji-vélina er
filmu smellt án nokkurrar þræðingar.
Merkið bréfin þannig: Æskumyndir, pósthólf 523, 121 Reykjavík.
Leiðrétting
15. tbl. hefur prentvillupúkinn eða einhuer frændi hans
gert okkur óleik. í Ijóöinu, Hjá ömmu í Reykjarfiröi 1923,
eftir Ingimund á Hóli, bls. 28, skaust oröiö „aö“ á milli lína.
Allir munu hafa séð að „púkanum" uar um að kenna
en hér á eftir fer vísan rétt:
En auðnan mér kenndi,
og ylgeisla sendi
af árdegis rísandi sól,
að ekki skal gráta
þá ungmennabáta
er öldurót hreif brott og mól.
Beðið er velvirðingar á þessum mistökum. - Ristj.
22 Æskan