Æskan

Árgangur

Æskan - 01.06.1990, Síða 26

Æskan - 01.06.1990, Síða 26
Knáir krakkar í sögulegri fjallaferð Framhaldssaga eftir Iðunni Steinsdóttur. Búi, Hrói og Lóa eru í útilegu á fjöllum. Búi haföi meö sér ferðaút- varp. Þau hafa heyrt í fréttum aö ell- efu ára telpa sé týnd - og að Víð- bláni, steini sem ekki á sinn líka i heiminum, hafi verið stolið. Fréttirn- ar koma þeim í uppnám en nú er ekki að vœnta frekari tíðinda úr út- varpi því að tækinu hefur verið stolið ... Þau hafa leitað þess og fengið ó- blíðar viðtökur hjá „Skeggja". Þar er komið sögu að Búi rœðir við Ted, erlendan ferðamann ... - Áður en tækinu var stolið heyrði ég í fréttum að það væri búið að stela Víðbláni. Veistu hvað það er? - Víðbláni, segir Ted og hristir höf- uðið. - Það er steinn sem á ekki sinn líka í öllum heiminum. Hann hefur hvergi fundist nema á íslandi og hingað til hefur aðeins fundist einn slíkur steinn. - Víðbláni, ég aldrei hafa heyrt um hann, tautar Ted. - Hann heitir Víðbláinn, segir Búi. Hann verður að finnast. - Þetta mjög slæmt, segir Ted. - Búi, Búi, ertu þarna! - Já, ég er hér. Búi réttir úr sér og veifar. Hrói og Lóa birtast neðar í skrið- unni og koma í átt til þeirra. Þeim er mikið niðri fyrir þegar þau segja frá því hvað Hróa og Skeggja hafi farið á milli. 26 Æskan - Hann er þjófurinn, segir Búi. - Hann ekki vera góður maður, það vera alveg víst, segir Ted. - Hann er bæði þjófur og hrotti og ég held að Snúður sé ekki mikið betri, segir Hrói. Ted rís upp og tínir saman dótið sitt. - Er þér ekki heitt? spyr Lóa og hlær. Ted er í þykkri úlpu sem er hneppt alveg upp í háls. Sjálf er hún bara í léttum bol úr bómull. - Nei, ég koma frá Ítalía. Þar vera mikið heitt. Hér bara kalt, segir Ted og hlær. Hann kastar á þau kveðju og labb- ar burt. Búi sýnir þeim steininn sem Ted gaf honum. - 0, ég vildi að ég ætti hann, segir Lóa. - Við áttum að hafa hamar og meitil með okkur, segir Hrói. - Við gerum það næst, segir Búi. - Það er munur að eiga svona granna eða fíflið hann Skeggja, segir Lóa. - Nú fáum við engar fréttir af Víð- bláni, segir Búi. - Og ekki af Láru sem týndist, seg- ir Lóa. - Eftir fjóra daga förum við heim og þá fáum við að heyra meira um þau, segir Búi. - Og þá fáum við aftur heitan mat, segir Hrói og horfir með fýlu ofan í poka með hnetum og rúsínum sem Lóa heldur upp að fésinu á honum- - Ég hef ekki lyst. Við skuluf1 koma út í brekkuna þar sem lyn^‘ er og leita að berjum, segir hann. Þau rísa upp. Það er ágætt að hvíla sig á grjótinu og finna angan af lyn^' fyrir vitum sér. í skjóli nætur Búi getur ekki sofið, honum er sv° illt í maganum. Ég hefði ekki átt að borða svona mikið af berjum, tautar hann v> sjálfan sig. Berin voru bara svo fersk og g° ' Þroskuð bláber og krækiber svo ^ af safa að þau voru að springa- => hann var orðinn svo leiður á hn um, rúsínum og harðfiski. Regnið bylur á tjaldinu. Að h3^ skyldi nú einmitt fara að rigna nún£ Búi byltir sér fram og aftur. f Ég verð að fara á klósettið, hugs hann. g,. En hann langar ekki til að einn út í þetta vonda veðut dimma nótt. < Hann reynir að vekja Hróa en P tekst ekki, Hrói sefur svo fast. ^ Hann ýtir við Lóu. Hún umlar veltir sér á hina hliðina. Hann gefst upp, skríður upP pokanum og klæðir sig. nl Nú er gott að hafa hlýju fötin s^ amma tróð ofan í pokann h ^, Hann opnar tjaldið og skrfður * regnið. Það er þoka og svo dimh1 Úf

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.