Æskan - 01.06.1990, Síða 42
Aðdáendum svarað
Láttu fátt
en hyggðu hátt
Pórdís Gísladóttir íþróttafræðingur og hástökkvari svarar aðdáendum
Hvar og hvenær ertu fædd?
5. mars 1961 í Reykjavík
Ólstu þar upp?
Já - í Hlíðunum.
/ hvaöa skólum hefur þú veriö?
Hvaöa prófum hefur þú lokiö?
Hlíðaskóla, Verslunarskóla íslands,
Háskólanum í Alabama. BS-prófi í í-
þrótta- og heilsufræði.
Vaknaöi áhugi þinn á íþróttum
snemma?
Já, mjög snemma. íþróttir og leikfimi
voru eftirlætisgreinar mínar í skóla.
Kynni mín af frjálsíþróttum tengjast
einmitt Barnablaðinu Æskunni. Pað og
Frjálsíþróttasamband Islands stóðu fyrir
keppni sem nefndist „Príþraut FRÍ og
Æskunnar". (60 m hlaup - hástökk -
boltakast) Mót voru haldin í öllum skól-
um landsins. Að vori fengu þau sex,
sem bestum árangri höfðu náð í hverri
grein, að keppa í úrslitakeppninni sem
haldin var að Laugarvatni. Ég komst í
úrslitakeppnina þegar ég var 11 ára. Ég
komst aftur í keppnina 13 ára (1974)
og sigraði þá í hástökki. I þessari
keppni blossaði áhuginn á frjálsíþrótt-
um upp.
Guðmundur Pórarinsson þjálfari IR-
inga sá mig þar og bað mig um að
koma og æfa hjá sér. Ég tók því fegins
hendi og hef alla tíð síðan haft mjög
gaman af að æfa.
Ég hef einnig æft sund, handknattleik
og blak lítillega en eftir að ég ákvað að
taka frjálsíþróttirnar alvarlega hætti ég
að mestu við aðrar greinar nema „á
gutl-hraða upp á grín“.
Meö hvaöa félögum hefur þú æft og
keppt?
Ég byrjaði að æfa og keppa af alvöru
1975 (14 ára). Ég keppti fyrir ÍR frá
1975 til 1985 er ég skipti yfir í HSK
(Héraðssambandið Skarphéðin).
,Eg setti aldursflokkamet á fyrsta ári. Það má segja
að hástökkið hafi valið mig. “
Ástæðan fyrir félagaskiptunum var e,n
vörðungu sú að maðurinn minn, Práinn
Hafsteinsson, keppti fyrir HSK.
Hefur þú alltaf einbeitt þér aö há-
stökki?
Pegar ég byrjaði í frjálsum íþróttum
stundaði ég jafnhliða hlaup, köst °9
stökk. En fljótlega kom í Ijós að ha
stökkið ætti best við mig því að ég sett,'
aldursflokkamet í þeirri grein strax a
fyrsta ári. Pað má segja að hástökki
hafi valið mig.
Ég hef alltaf keppt í spretthlaupum nn
þess að æfa þau sérstaklega en hluti a
hástökksþjálfun eru sprettæfingar sV°
að það á ágætlega við mig að taka einn
og einn sprett í keppni annað veif'
Einnig finnst mér 100 m grindahlaup
mjög skemmtileg grein og keppi ott !
því. Ég hef verið landsliðsmaður í þe'rrl
grein og 4x100 m boðhlaupi, auk ha
stökksins.
Hve oft hefur þú oröiö íslandsmai^
ari? Hvert er Íslandsmet þitt í hs
stökki?
Ég varð fyrst íslandsmeistari í ha
stökki utanhúss 1975 og ellefu sinnum
síðan. Cltanhúss: 187 sm. Innanhúss-
188 sm.
Hefur þú keppt víöa erlendis? H°er
eru helstu mótin?
Iþróttaiðkun hefur mjög marga
kost'
auk þess að stuðla að hreysti á sál °ð
líkama. Hennar vegna hef ég fenð1
tækifæri til að skoða heiminn og kynn
ast fólki af ólíku þjóðerni.
Ég hef keppt í Danmörku, Noreg
Svíþjóð, Finnlandi, Bretlandi, írlan
Pýskalandi, á Spáni, Ítalíu, í Póllan
Sovétríkjunum, Mónakkó, Frakklan
Kanada, Bandaríkjunum, S-Kóreu
Grikklandi.
Stærstu mótin: Ólympíuleikarnir
1976 í Kanada og 1984 í Los AngeleS'
o9