Æskan

Árgangur

Æskan - 01.06.1990, Síða 44

Æskan - 01.06.1990, Síða 44
mestu að hlaupa en synti dálítið. I einn mánuð eftir fæðinguna naut ég þess bara að vera orðin mamma og þurfa ekki endilega að fara á æfingu. Pá byrjaði ég að synda og skokka þeg- ar mig langaði til. I október fór ég að æfa af alvöru, endurnærð eftir hvíldina. Mér þótti þá miklu skemmtilegra að æfa en áður. Það var þó töluvert erfitt að byrja aftur. Mér finnst ekkert skrýtið að margar konur hætti eftir að hafa átt barn því að manni finnst að maður sé æfingarlaus í fyrstu. En þetta kom furðu fljótt. Hætta konur að keppa yngri að árum en karlar? Raunin hefur verið sú að konur hætti þó nokkru fyrr en karlar. Sennilega er það vegna stöðu kvenna þar sem þær ala börnin. Þær þurfa því að taka sig töluvert á til að byrja að æfa aftur af krafti. Margar telja líklega að vonlaust sé að ná fyrri árangri, hvað þá að bæta sig, og hafa því hætt eftir barneignir. Karlar hafa verið þrautseigari í íþrótt- um en konur og dugað lengur. Kannski hafa þeir alla tíð haft meiri áhuga enda hefur þeim verið hampað meira en kon- um. Þeir hafa fengið meiri athygli í fjöl- miðlum, meiri peningar hafa verið veitt- ir til íþrótta karla en kvenna og fleiri mót verið haldin fyrir þá en konur. En nú er þetta allt að breytast. Konur ná æ betri árangri og meðalaldurinn hefur hækkað töluvert. Við erum að minnsta kosti þrjár „mömmur" í ís- lenska landsliðinu í frjálsum íþróttum núna. Hoerjir eru eftirlætisíþróttamenn þínir? Þráinn Hafsteinsson (tugþraut), Gunnlaugur Grettisson (hástökk), Iris Grönfeldt (spjótkast). Hvaða erlendan íþróttamann hefur þú kunnað best oið? Söru Simoni, fyrrverandi heimsmet- hafa í hástökki. Hún varð fyrst kvenna til að stökkva yfir tvo metra. Hoernig líkaði ykkur að doeljast í Bandaríkjunum? Okkur líkaði vel í Bandaríkjunum og eigum þaðan margar góðar minningar. Við vorum þar í sex ár, nógu lengi til að kynnast bæði kostum og göllum þess að eiga heima erlendis. Við ferðuðumst um landið og fannst töluverður munur á fólkinu eftir fylkjum. Við vorum í Suður- ríkjunum þar sem sól skín allt árið. Þar er fólk mjög rólegt og margir ansi latir. Norðurríkin eru líkari íslandi. Þar eru árstíðaskipti. Kalifornía er sérstök af því að veðrið er þar alitaf gott og þar býr fólk alls staðar að úr heiminum. Áttu fleiri áhugamál en íþróttir? Þórdís, Helga og Þráinn Helsta áhugamálið, auk íþróttanna, er skipulag innanhúss. Eg hef mjög gam- an af að skoða bækur og blöð um hug- myndir arkitekta. Mér finnst alveg nauðsynlegt að koma öllu vel fyrir heima hjá mér því að maður er svo mikið heima. Eg er mikið fyrir breyting- ar. Draumurinn er að eignast einhvern tíma fallegt hús sem ég get dundað mér við að ganga frá og fært húsmuni nógu oft til í! Mér þykir líka mjög gaman að ferðast og fara í gönguferðir með Þráni og Helgu. Hoers konar tónlist fellur þér best? Róleg tónlist. Leikur þú á hljóðfæri? Því miður leik ég ekki á neitt hljóð- færi. Eg hefði gjarna viljað kunna á pí- anó eða gítar. Á hoaða tónlistarmönnum hefur þú mest dálæti? Zamfir. Hann leikur svo róandi og fal- leg lög. En leikurum? Sigurður Sigurjónsson finnst mér al- veg frábær. Eg hlæ alltaf þegar ég sé hann og mér finnst gott að hlæja. Gísli Halldórsson finnst mér líka mjög góður. Af erlendum leikurum finnst mér Meryl Streep best. Áttu eftirlætisskáld? Mér hefur alltaf þótt gaman að kvæð- ðÖ um og les kvæði oft. Mér finnst gott glugga í Ijóðabækur ef ég er í 9° næði og einnig ef ég er eitthvað le^ Helst les ég þessi „gömlu skáld“. Eð , . dálæti á Tómasi Guðmundssyni, J Helgasyni og Steini Steinari. p Hoer er eftirlætisréttur þinn? drykkur? Er eiginmaður þinn sa sinnis? Kjúklingar og lærissneiðar. Vatn sítrónudrykkur. Þráinn borðar allt! er mjög einfalt að matbúa fyrir hann P að hann kvartar aldrei. Eftirlætisdry ur hans er bland úr appelsíni og malt'- Hvað hefur þér þótt oiturlsða sagt? ,ða Búist við því versta því að það 9° sakar ekki. Láttu fátt en hyggðu hátt. Hoaða dýr geðjast þér best? Hestar. Hoað fellur þér best í fari fólks? oerst? ér Trygglyndi og heiðarleiki falla best en verst kann ég við öfund, sJa umgleði, nísku og neikvæði. f . Hoað ráðleggur þú þeim sem s,^. að þoí að ná góðum árangri í íPr° um? ju. Að temja sér samviskusemi, re9 semi og að gefast ekki upp þótt blási. 48 Æskan

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.