Æskan - 01.06.1990, Blaðsíða 54
•r-4 O
Vinir eða
eitthvað meir
Kæra Nanna Kolbrún!
Ég hef við mikið vandamál
að stríða sem ég vona að þú
getir leyst. Þannig er mál með
vexti að ég hef oft farið út
með strák sem við skulum
kalla Á. Fyrst vorum við bara
vinir en nú er þetta að þróast
upp í eitthvað meira. Ég veit
nú reyndar ekki hvernig mér
líkar það. Hann hefur sagt
mér að hann sé hrifinn af
mér. Hann er kurteis, tillits-
samur, góður við mig, herra-
legur og fleira. En alltaf er ég
að hugsa um útilitið. Ég er
alltaf að heyra að innrætið
eigi að gilda. En ég, eins og
aðrir á mínum aldri (ég er á
15. ári), fer alltaf að hugsa um
útlitið. Samt, ef hann fer eitt-
hvað, sakna ég hans alltaf.
Við höfum mjög ólík áhuga-
mál. Hann er mjög frjálslega
vaxinn og ekki sérlega smá-
fríður. Og í þokkabót fer ég
alltaf að hugsa um hvort
hann sé ekki bara að athuga
hve langt hann geti komist
því að hann hefur aldrei verið
á föstu eða neitt.
Við erum jafngömul. Hann
er naut og ég er meyja.
Hvernig á það saman? Hvað
lestu úr skriftinni?
Ein í vandrœðum.
Svar:
Þú virðist ekki vera örugg
á því hvaða hug þú ber til
piltsins. Stundum eru
mörkin á milli hrifningar
og vináttu óljós og það er
greinilega margt í fari hans
sem þér fellur vel við og þú
saknar þegar þið eruð
fjarri hvort öðru.
Efasemdirnar koma síð-
an í tengslum við útlitið, á-
hugamálin og hvað liggi að
baki áhuga hans á þér.
Reyndu að gefa þér tíma
til þess að átta þig á tilfinn-
ingum þínum. Þið eruð
bœði að stíga ykkar fyrstu
spor með hinu kyninu og
þá er mikilvœgt að spjalla
saman um það eftir hverju
þið eruð að sœkjast hvort
hjá öðru.
Hvað er þú sjálf með í
huga? Hvers vegna fellur
þér betur við hann en
aðra? Hvað er það við útlit-
ið sem þú ert ekki ánœgð
með. Þessara og álíka
spurninga verður þú að
spyrja sjálfa þig og ekki
sakar að rœða málið við
góða vinkonu.
Eg hef ekkert vit á
stjörnumerkjum og hvernig
þau eiga saman og get því
ekki sagt neitt um það.
Skriftin er ómótuð og
nokkuð barnaleg en þó
lœsileg, gœti borið vott unl
fljótfœrni og bráðlceti, söííl
fara vissri ákveðni.
„Á túr“
Kæra Æska!
Kannski finnst þér þetta
ekkert sérstakt en mér finns
það. Það er þannig að ég el a
12. árinu og er nýbyrjuð að a
blæðingar. Ég er áreiðanleð3
búin að vera með þær í fimI11
daga þegar þú færð þetta
bréf. Mamma er ófrísk svo a
hún er hætt að nota bindi og
ég get ekki sagt henni þetta-
Henni er ekki treystandi og
engri vinkonu minni heldun
Mig langar til að spytja s'°
lítið:
Hvað er langt þangað til^
má fara í sund?
Hvenær eiga blæðingatn31
að hætta?
Hvað líður langt á mill'
blæðinganna?
Ég á Stelpnafræðarann o&
þar stendur að ég eigi a^ a
á túr og þá verði bilin um el
58 Æskan