Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.06.1990, Qupperneq 57

Æskan - 01.06.1990, Qupperneq 57
Þegar Dalai Lama fékk friðar-verðlaunin ir G'tbi- Morska barnablaösins 1990 seg- þu' L°nar Kværne Amundsen 8 ára frá 0a' Pe9ar útlaga-þjóöhöföingja Tíbets, ^óbe/ ^ama’ voru oeitt friöaruerölaun Bekk kik Urinn, sem Gunnar er í, haföi ^ na® myndir sem átti aö afhenda Dalai aA 3 Giinnar fékk aö fara til Óslóar til JJa hann. lai, birtum hluta af frásögn Gunnars í s egri þýöingu: hátí?,3*3' *~arna átti að fá verðlaunin í fyrir arsal háskólans í Ósló. Margir voru k0 .^tan hygginguna. Tíbetar höfðu fjór * me^ hugvél frá Sviss og ekið í U|ri rútum frá flugvellinum. bj|ao an vi^ hiðum horfðum við á alla ^orn'A Sem iuiitruar ýmissa ríkja höfðu La '• A þeim voru þjóðfánar. Dalai og va.f^°m ' konungs-bíl. Hann brosti 0|. j e' aöi og var svo notalegur að okk- Tjbgf®9*"*' hl að fá að kynnast honum. s0n arnir börðu trommur og sungu L0L^Va lii að bjóða hann velkominn. un . °mu krónprinsinn okkar og kon- r,nn og allir fögnuðu þeim ákaft. Meðan afhending verðlaunanna fór fram hugsaði ég dálítið um Dalai Lama. Þó að allir vildu núna tala við hann og gera honum hátt undir höfði átti hann kannski engan einkavin til að gleðjast með sér. A vissan hátt hlaut að vera einmanalegt að vera konungur og trúar- höfðingi. Sýnum hvert öðru umhyggju Þegar Dalai Lama hafði tekið við verðlaununum fór hann í ræðustólinn og heilsaði áhorfendum. Hann gerir það líkt og þegar við biðjum til Guðs. Fyrst ávarpaði hann landa sína á tíbetsku. Mér fannst það eiga vel við. Ekki hefði okkur líkað að konungurinn okkar tal- aði við okkur á erlendu máli ef við hefð- um verið flóttamenn í framandi landi. Hann þakkaði fyrir verðlaunin og það að með þeim væri þjóð hans sýndur hlýhugur. Hann sagði að friður gæti ekki ríkt í heiminum nema við hugsuð- um hlýtt hvert til annars og værum um- hyggjusöm. Blysför öm kvöldið fórum við í blysför til að heiðra Dalai Lama. Það var næstum eins og á þjóðhátíðar-deginum nema að við höfðum blys í stað fána. Við vor- um ekki heldur að halda upp á að við erum sjálfstæð þjóð heldur að fagna með Tíbetum. En mest fögnuðum við til heiðurs Dalai Lama. Við gengum til gistihússins þar sem Dalai Lama dvaldist. Blysin lýstu í myrkrinu. Við vorum eins og geysilangt jólatré! Hann stóð á svölunum og heils- aði fólkinu. Hann brosti og hló svo að við heyrðum það alveg niður á götu. Á- reiðanlega af því að honum fannst svo viðkunnanlegt að sjá þetta lýsandi vin- áttuband. Tíbetarnir sungu þjóðsönginn sinn. Svo kom Dalai Lama niður og heilsaði vinum sínum og allir fögnuðu. Að vera hjartahlýr Ég fór líka á samkomu í Tónleika- höllinni. bar var Dalai Lama hylltur með söng og dansi. Pað er gamall tíbetskur siður. Bæði norskir unglingar og Tíbetar tóku þátt í því. Dalai Lama ávarpaði okkur. Hann sagði að það væri mikilvægt að nem- endur sinntu námi sínu vel. En það væri jafnmikilvægt að bera umhyggju fyrir öðrum og vera hjartahlýr. Ef við yrðum bæði námfús og góð gætum við bætt heiminn. Hann sagði að við gætum lært mikið af dýrunum. Býflugur gætu lifað í sátt og samlyndi án þess að hafa her og stjórnmálamenn. Þegar Dalai Lama kom til Ósló til að taka við friðarverð- launum Nóbels hitti hann þar landa sína, Tíbeta. - Ljósm.: Bjorn Thunæs/Scan- Foto. Eins og að kveðja vln Pað var dálítið tómlegt og dapurlegt þegar Dalai Lama hafði kvatt alla og farið úr salnum. Mér fannst það næst- um eins og að kveðja vin. Ég vona að hann komi aftur til Noregs og að sem flest norsk börn fái að kynnast honum. I barnatímanum sagði hann að það mikilvægasta sem norsk börn gætu gert fyrir Tíbet væri að læra meira um landið og fólkið sem á heima þar. Hann vonar að norsk börn geti kynnst tíbetskum börnum. Pað vona ég líka. Pví að þá getum við unnið saman fyr- ir frið í heiminum. Æskan 61

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.