Æskan

Árgangur

Æskan - 15.12.1925, Blaðsíða 8

Æskan - 15.12.1925, Blaðsíða 8
100 Æ S K A N kytrunni, en nýi bóndinn bygði sér bæ við hliðina. Hún var ern og vann fyrir sér að mestu leyti og margir urðu til þess að greiða fyrir benni, því hún var vel kynt. Stína og Siggi voru í miklu dálæti hjá henni, enda var hún mjög barngóð. í*au voru ekki lengi á leiðinni heim En hvað gat hann verið að éta þarna? Pað var þeim fullkomin ráðgáta. Loks- ins teygði Siggi litli sig ofurhægt að eyranu á systur sinni og hvíslar: »Hann skyldi þó aldrei vera að éta hana Gunnu gömlu?« Eftir þetta skulfu þau hreint og beint af hræðslu. Stína gat engu svarað, en til hennar, því það var ekki steinsnar á milli bæjanna. Þau flýttu sér inn göngin og ætluðu rakleitt inn i eldhús, því þar bjuggust þau við að hitta Gunnu, en þegar þau voru rétt komin að eld- húsdyrunum, brá þeim heldur en ekki í brún, því þau sjá þá kolsvartan kött slanda þar í kryppunni við vegginn og vera að háma eitthvað í sig. Ekki var hann á stærð við venjulegan kött, heldur á að gizka eins og kálfur. þau þóttust nú vita með vissu, að þetta væri jóla- kötturinn og þorðu ekki að hreyfa sig úr sporunum og varla draga andann. fanst með sjálfri sér að jólakötturinn væri óþarflega matbráður, að geta ekki beðið lengur en þetta. Hún var þess þó fullviss, að mamma sín mundi gefa Gunnu eitthvað þetta jólakveld eins og vant var, til þess að jólakötturinn tæki hana ekki. Til allrar hamingju fyrir þau fór Gunna að raula jólavers inni í eldhús- inu; þá biðu þau ekki boðanna, heldur ruddust inn til hennar og kölluðu hvort í kapp við annað: »Góða Gunna, hjálp- aðu okkur, jólakötturinn hefir náð í einhvern og ætlar lika að taka okkur!«

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.