Æskan

Árgangur

Æskan - 15.12.1925, Blaðsíða 34

Æskan - 15.12.1925, Blaðsíða 34
126 Æ S K A N »Rut litla kom til mín og sagði að þú bæðir mig að koma og vaka yfir börn- unum með þér. Og af því að þú hefir ekki unnið svo lengi, þá grunaði mig að litið væri til í kotinu. Eru þau ákaflega veik?« »Ég býst við dauða þeirra þá og þegar«, sagði Sara grátandi. »Hörð er refsihönd guðs, að svifta mig fyrst manninum og ætla svo að taka frá mér börnin mín«. »Öllu er ég svift«, sagði Lea. »En gráttu ekki, Sara mín, guð er almáttugur, eilífur og góður, og ekki er víst nema hann sýni þér miskunn sína og gefi börn- unum heilsuna aftur«. »Hrædd er ég við reiði hans«, sagði Sara með ekka. »Gráttu ekki«, sagði Lea aftur. »Nú er svo mikill glaumur og gleði í borg- inni og þá á enginn að gráta þegar aðrir eru glaðir. Heródes konungur er að taka manntal og alt er fult af gestum. Ég hef séð svo marga fara heim að gistihúsinu; en gestgjafinu hefir víst ekki hýst nema þá ríkustu, sem gátu borgað vel fyrir sig, því margir sueru þaðan aftur. Sérstaklega tók ég eftir einum hjónum, sem sneru þaðan. Konan var ríðandi á ösnu, en maðurinn gangandi og þau voru mjög þreytuleg, mér sýndist konan naumast geta setið á baki«. »Varla hafa þau verið mjög glöð«, sagði Sára, »en hvar ætli þau hafi fengið náttstað?« »Eg sá að þau héldu áleiðis að fjárhúsi, sem stendur utan við borgina. Pau hafa líklega látið fyrirberast þar«. »Mamma, mamma! Hvaða birta er þetta?« Pær litu við og störðu sem steini lostnar á börnin; þau voru risin upp og litu út eins og þau hefðu aldrei verið veik. Og það var bjart í herberginu sem um hádag. »Mamma, hvaða söngur er þetta?« spurðu þau. »Okkur batnaði þegar birt- an kom og við heyrðum sönginn. Lof- aðu okkur aö fara á fætur og koma út«. Pær störðu út um gluggann. Á aust- urhimninum skein stór stjarna, sem bar skæran Ijón ' t*að var sem himin og jörð væru eitt ljóshaf, en þó var birtan mest hjá fjárhúsinu. »Við skulum öll fara þangað«, sagði Elí. »HjáIpið þið okkur í fötin, við verðum að flýta okkur«. Þær hjálpuðu þeim í fötin og svo héldu þau af stað út að fjárhúsinu. Sara bar Rakel, en Lea leiddi Elí. Englasöngur kvað við í loftinu og þeim fanst sem þau heyra orðin: »1 dag er yður frelsari fæddur, sem er drottinn Kristur í borg Davíðs«. Þær féllu á kné af lotningu, en stóðu fljótt upp aftur og flýttu sér að fjárhúsinu. Birta ljómaði frá dyrum þess og það var alt í einu ljóshafi. Þær þoröu varla að líta inn; en svo hertu þær upp hugann og gengu inn. í jötunni sat kona með engilfagurt barn í fanginu og stóðu geislar af aug- um þess. Maðurinn sat þar skamt frá og horfði ánægjulega á barnið og móðurina. Konurnar og börnin féllu ósjálfrátt á kné frammi fyrir barninu og móður þess. »Er þetta hjálpræðið, sem guð hefir fyrirbúið þjóð sinni ísrael?« spurði Sara. »Rétt segir þú«, svaraði konan. »En hann mun ekki einungis hjálpa henni, heldur og öllum heiminum«. »Guðdómlegur er kraftur sá, er fylgir þvi«, sagði Sara. »Börnin mín hafa lengi verið veik og ég hélt að þau mundu deyja. En alt í einu fóru þau að tala um birtuna og sönginn, báðu um fötin sín og vildu fara hingað«. »í*eim hefir batnað á augnablikinu, sem Jesú fæddist«, sagði móðir hans. »Hann mun lækna sjúka og lífga dauða«. Sara leit á Jesú-barnið og svo á börn- in sín. »Guð blessi þig, himneska vera«, sagði hún. »Börnin mín, kyssið þið á hönd þess og þakkið því heilsuna«. Börnin lutu niður og kystu á litlu hendina, og sama gerðu konurnar. Svo héldu þau út aftur. Stjarnan skein á fjárhúsið og englarnir sungu barninu lof. »Guði sé lof og dýrð, að hann hefir sent ’ ísrael hjálpræði sitt og lækni«, sagði Lea. »Já, satt sagðir þú áðan, Lea mín, að hann myndi lækna börnin mín, honum er ekkert ómáttugt«. »Við þurfum nú ekki að vaka í nótt«, sagði Lea. »En mér finst ég ekki geta slitið mig frá að horfa á dýrð nætur- innar og hlusta á englasönginn«. »Við skulum lofa almætti guðs«, sagði Sara. »Hann hefir látið það fram koma, er spámennirnir hafa fyrir sagt«. Og þær féllu á kné. Útgetandi: Signrjén Jónsson. Prentamiðjan Gutenberg.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.