Æskan

Árgangur

Æskan - 15.12.1925, Blaðsíða 20

Æskan - 15.12.1925, Blaðsíða 20
112 Æ S K A N AGARNIR slytt- ust.Þaðvar ákveðið, að skólabörn- in skyldufá að keppa á skiðum. Og það átti að verðl. þau börnin sem fræknust yrðu. Vetur var í garð genginn. Aldrei höfðu skóla- börnin verið eins áhugasöm og þau voru nú. En þau fengu líka nýjan kennara í haust. Rað var nú karl í krapinu. Börn- unum þótti nóg um galsa hans. Ekki vantaöi það, að hann kendi börnunum ágætlega, og hann sagði svo vel sögur, að skólabörnin höfðu aldrei heyrt því- líkt fyr. Enda þótt gamli kennarinn hefði sagt sögurnar vel, gerði þessi það betur. Hann var líka úti með börnun- um. Hann lék sér með þeim, fylgdi þeim eftir á leiksviðinu, leiðbeindi þeim og hvatti þau til íþrótta. Þau fengu sannarlega að rélta úr sér, slrákar og stelpur, Pau lærðu að verða snör í snúningum. Þegar nýi kennarinn fram- kvæmdi eitthvað, þá var það ‘ekkert hálfverk. Hann gekk að því með oddi og egg. Óg ætíð var hann svo skemtinn, að hið hálfa var nóg. En þá tók nú fyrst í hnúkana, þegar skíðin komu til sögunnar. Kennarinn var skíðamaður svo mikill, að honum var hver brekka fær, hvert flug leikur, og hlíðarnar snið- skar hann eins og snillingur. Börnin horfðu undrandi á, þegar hann lék sér á skiðum. Honum varð nú ekki flökurt af að fljúga í loftinu. Hann fór út með börnin, þegar gott var veður, og lét það koma i stað kenslu. Og þá kendi hann þeim oft á skíðum. Hann sýndi þeim, hvernig ætti að standa í brekkum, halda jafnvægi á flugi og sniðskera hlíðar. Hann taldi ekki eftir sér að vera úti með börnunum seinni- hluta daga, þegar skólatíma var lokið. Sæi hann börnin fara langt upp í hliðar, þá lét hann ekki standa á sér að koma. Þvílik skíðahlaup, sem nú áttu sér stað meðal barna, höfðu ekki tiðkast þar í manna minnum. Og það hittist líka þannig á, að annað eins skíðafæri hafði ekki komið langa lengi. Miklir snjóar voru fram að jólum, og ágætt skíðafæri hélzt um allar hátíðar. Og eftir nýárið átti að keppa. Börnin höfðu orðið þess vör, að kennarinn var að safna verðlaunafé. Ýmsir létu mikið af hendi rakna, og fjárupphæðin var víst orðin töluverð. Hann Áskell Grímsson hafði heyrt kennarann minnast á, að verðlaunasjóð- urinn væri orðinn afarmikill. Fólkið var svo fúst að leggja í sjóðinn. Og kennarinn hafði sagt, að íjálfur vildi hann hafa verðlaunin svo rífleg, að börnin hefðu bæði gagn og gaman af. Hvað haldið þið honum hafi hugkvæmstl Hann fékk sér dómnefnd. Fræknustu

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.