Æskan

Árgangur

Æskan - 15.12.1925, Blaðsíða 27

Æskan - 15.12.1925, Blaðsíða 27
Æ S K A N 119 vatnsburðinn og snúningana, sem þær borguðu á hverjum laugardegi. Já, pok- inn var með þyngsta móti og hann átti erfitt með að bera hann og það í þessu vonda færi. En skyldi ekki kerling hans verða léttbrýn, þegar hann færi að tína upp úr pokanum þegar heim kæmi. Hún gæti þó ekki neitað því, að það drægi um það, sem hann kæmi með. Annars fanst honum hún jafnan heldur vanþakklát og gera lítið úr þessu, sem hann dró í búið á þennan hátt. Það hefði stundum jafnvel gengið svo langt, kerlingar eru svona jafnan, bætti hann við í huganum. Annars þótli Steinmóði gamla vænt um Bryndísi sina og hafði æfinlega þótt það. Þau voru nú búin að vera saman nær því i 50 ár, og hann varð að játa það, að hún var skörungur til vinnu og vann í raun og veru fyrir þeim báðum. Og svo var hún svo hirtin og nærgætin við hann, að hann gat ekki annað en dáðst að henni fyrir það. Og falleg hafði hún verið á yngri árum, það mundi hann, og í raun og veru væri hún alt af falleg og sköruleg. Hann Steinmóður gamli á heimleið. að hún hefði bannað honum að taka við þessum matargjöfum. En hann hafði nú gert það samt. »Það er eins og þær væru að kasta bita í hungraðan hund«, hafði hún stundum sagt, og bætt svo við, að þau gætu sjálf unnið fyrir sér og haft nóg að bíta og brenna og væru ekki upp á það komin að láta gefa sér. Þær þessar frúr mættu eiga sinn mat sjálfar. Já, og fleira hafði hún stundum sagt og ljótara en þetta. En hann hafði aldrei farið eftir þessu rugli í henni. Honum fanst það vera vanþakklæti af sér, ef hann tæki ekki á móti þvf, sem honum væri gefið af góðum hug. Og hann hefði stundum rekið það í kerl- ingu sina, að það stæði í kverinu að menn ættu að vera lítillátir eins og börn. Það hefði hann sagt meistarinn mikli. Ekki hefði hann verið stórlátur og þá sæti það ekki á þeim að vera það. En hefði ekki getað fengið betri konu. Og ánægjubros færðist yfir hrukkótta and- litið á Steinmóði gamla við þá hugsun. Hann hlakkaði til að koma heim og mega nú hvíla sig á morgun, því hann hafði borið svo mikið vatn og eldivið í húsin, að það mundi nægja á morgun, enda ætlaði hann að fara í kirkju á jóladaginn. »Komdu sæl, góða min«, sagði Stein- móður gamli við konu sína, þegar hann lauk upp baðstofuhurðinni og lagði pokann frá sér á kistu, sem stóð rétt fyrir innan dyrnar. »Hérna færi ég þér nokkuð til jól- anna, kerling mín«. »Komdu sæll. Og já, eitthvað er nú í pokanum. Annars höfum við nóg til jólanna, svo er guði fyrir að þakka — þó við fáum ekki þessar ölmusugjafir frá frúnum«, sagði Bryndís og herti sig

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.