Æskan

Árgangur

Æskan - 15.12.1925, Blaðsíða 32

Æskan - 15.12.1925, Blaðsíða 32
124 Æ S K A N fyrir henni framvegis án þess að hrepp- urinn þyrfti að kosta nokkru til hennar«. Grímólfur stóð orðlaus af undrun. Var Jterlingunni alvara að taka barnið meðgjafarlaust. »En ertu nú fær um það, Bryndís gamla, að bæta við í Koti? Er ekki karl- inn þinn orðinn mesti ræfill til heilsu?« »Og það læt ég vera. Ég vona að barnið þurfi ekki að Iíða skort hjá mér fyrst um sinn, og við gerum ekki svo miklar kröfur til lífsins«. »Jæja, Bryndis. Ég veit ekki hverju ég á að svara og reyndar þarf ég að bera þetta undir hina hreppsnefndar- mennina. Er ekki nóg að þú fáir að vita það milli jóla og nýárs. Ekki ferðu með barnið í þessu veðri hvort sem er. Er ekki hálfgerð stórhríð?« »Veðrið er hálfvont, en ég skal ekki láta barninu verða kalt og mig langar til að fá Herdísi litlu heim með mér í kvöld«. »Við skulum þá koma hérna inn í stofuna og spyrja barnið, hvort það vilji fara með þér. Ekki læt ég hana fara nauðuga«. »Jæja, Dísa litla«, sagði Grímólfur, þegar hann kom inn í stofuna. »Viltu fara með henni Bryndísi gömlu og vera hjá henni um jólin í Kotinu hennar og svo alt af framvegis?« Þegar þau komu inn í stofuna, hafði Herdís litla staðið upp þegar hún þekti Bryndísi, og þegar hún heyrði spurningu Grímólfs, færðist gleðibros yfir litla sorg- bitna andlitið og hún hljóp með út- breiddar hendurnar upp í fangið á Bryndísi gömlu, þó hún væri öll snjóug. Bryndís greip Herdísi litlu í faðm sér og þrýsti henni að hjarta sér. »Jæja, Bryndís. Mér sýnist barnið vilja fara með þér, og dótið hennar skal ég senda næstu daga heim til þín. Þú hefir nóg að bera hana sjálfa í þessu veðri«. Bryndís kvaddi og fór. Þegar Bryndís kom fram í anddyrið, klæddi hún sig úr kápuræflinum, sem hún var í utan yfir, og vafði henni vand- lega utan um Herdísi, svo henni yrði ekki kalt, og hljóp svo með bana út í hríðina. Veðrið var hið sama. Dimmviðris- hríð, en reif í loft á stöku stað. Og í norðri tindruðu nokkrar stjörnur í skýja- rofi og sendu geisla sína niður til Bryn- disar gömlu, þar sem hún kafaði snjó- inn á móti hríðinni með munaðarleys- ingjann í faðminum. Hann kom, — ekki’ í pellskrúði og purpuraljóma, með prúðbúið riddaralið, — hann lét ekki’ á undan sér herbumbur liljóma, svo heimurinn riðaði við. Hann bar hvorki skjöld né skjóma, — hann lék sér sem barn milli blóma, hann, julltrúinn kœrleikans, jriðarins boðberinn góði, liin jegursla liugsjón i ísraels-skáldanna Ijóði. Hann, Ijósgjafum aldanna, íklœddur lioldi og blóði! (Guöm. Guðmundsson: uFrlður á jörðu«.)

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.