Kyndill - 01.03.1933, Page 11

Kyndill - 01.03.1933, Page 11
Nazisminn og forráðamennimir. Kyndill miðum og knýja þau, í framkvæmd, gera ab engu göm- ul forréttindi og skapa önnur ný, eða skapa mannréttindi nýrrar tegundar eins og gert var í byltingunn'i, í Rúss- landi. Gagnbylting er i því fólgin, að fylgjendur hins gamla skipulags, njótendur hinna fyrri forréttinda og samþykkjendur hins afnumda réttargrundvallar, sprengja fylkingar byltingamannanna og kippa öllu í sama horfið- Atburðirnir, sem gerst hafa í Þýzkalandi undanfarna mánuði, eru til að sjá samkvæmt áður sögðu bylting,. — afnám ríkjandi skipulags með öllum einkennum slíkr- ar gerbreytingar á félagslegum högum. Sá flokkur, manna, sem þetta hefir gert, eru nazistar, eins og þeirr eru tíðast kallaðir hér. National Socialistische Arbeiterr Partei Deutschlands. — En þó er hér með ekki nema hálfsögð sagan. Bylting getur verið skyndilegt átak for- réttindastéttarinnar til þess að stöðva félagslega þróun, afnema þau félagsform, mannréttindi, þá dreyfingu op- inberra byrða, sem iðnþróunin hefir skapað, steypa yf- irtök hinnar fámennu arðsugustéttar í órjúfandi skipu- lagsform, sem varðveitt er með blóðugu ofbcld,i í skjóli nýsaminna laga. Þegar svo stendur á verður gagnbylt- ingin framlæg, það er, hún verður fólginf í aðhæfingu (anpassung), samræmingu skipulagsins við framleiðslu- hætti og lífsmöguleika fólksins. Sé byltingin aftur á móti fólgin í þeðisgengnu átaki þeirra, sem eru að verða úti á jöðrum hins rangláta skipulags í réttleysi og áþján til þess að aðhæfa, samræma skipulagið við lífsmögu- leika fólksins, framleiðsluhætti, — með öðrum orðum framlæg, þá verður gagnbyltingin fólgin í viðnámi. 5

x

Kyndill

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kyndill
https://timarit.is/publication/386

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.