Kyndill - 01.03.1933, Page 15
Nazisminn og forráðamennirnir
Kyndill
háværa tal um fyrirlitningu á þingræði og afnám þess,
hafa nazistar notað þingræðið út í yztu æsar til þess
að efla flokk sinn. Þeir gera byltinguna á grundvelli
svokallaðs kosningasigurs. Þegar að stjórn ríkisins hefir
verið afhent nazistum á lögformlegan hátt, þá lýsa
þeir yfir byltingu. Það, sem sérkennir þessa byltingu
meðal allra í ísögunni, er það, að stjórnskipulega skipuð
stjórn gerir lögleysur og ofbeldi að meginvopni sínu.
Og ofbeldið er það eina, sem hún á sameiginlegt við
aðrar byltingar. Annars hafa byltingar yfir höfuð risið
af mannúðar- og réttlætis-hugsjónum, af stórum fyrir-
ætlunum um stofnun betra skipulags — hér er hún hið
andhverfa, bakstigula átak. Þýzku byltingamennina hefir
ekki dreymt neina drauma, þeir hafa ekki skapað neina
framtíðarlausn, ekki séð eitt einasta úrræði. Þeir hafa
Þegið alt að láni, sem einkennir þá. Stakka sína og kveðj-
ur frá ítölum, fjögra ára ætlunin þeirra um endurreisn
er ekki annað en skilningslaust eftirát og bergmál frá
Rússlandi. „Nafn Hitlers eitt er nóg fjárhagsáætlun" er
eitt af spekiorðum nazistanna. Það sýndi sig þegar
alaþjóðabankinn fékk orðsendingu um það á dögunum
uð Þýzkaland gæti ekki borgað samkv. skuldbindingum
sinum, að þeim þótti nafn Hitlers eitt nokkuð létt i
kassanum. Og fyrir nokkrum vikum fékk Englandsbanki
sams konar tilkynningu. Það reynist erfiðara og erfiðara
að ná fé til þess að yfirfæra. Sendið fulltrúa enskra
verðbréfaeigenda á fund meö oss 25. maí til þess að
hefja umræður um málið. Ég er hræddur um að Mon-
^ague Norman og aðrir fjármálamenn verði langeygðir,
9>