Kyndill - 01.03.1933, Side 16
Kyndill
Nazisminn og forráðamenninnir
ef þeir fá ekkert nema nafn Hitlers eitt, þó að mikill
Ijómi standi af því. 1 höndum Hitlers er Þýzkaland að
sjálfs sín sögn þegar komið' í þá úlfakreppu að geta
ekki staðið við fjárhagslegar skuldbindingar, en gerir
þó háværastar kröfur allra landa um nauðsyn gífurlegs
vígbúnaðar. Engir nema pólitískir óvitar láta sér til
hugar koma, að unt sé að fylgja fram slíkri stjórnar-
stefnu. Og á forráðamenn þjóðbankans enska mun
gaspur nazistanna um vansæmd vígbúnaðarleysisins og
komandi hervald og vegsemd föðurlandsins ekki hafa
meiri áhrif en þó að titlingur tísti uti í móa. Hitler á í
þeirri vök að verjast, að hann verður að fullnægja
kröfum fjárvaldsins með því að halda alþýðu Þýzka-
lands í helgreipum. Honum verða ekki leyfðar neinar
þær aðgerðir, sem geri hann líklegan til þess að geta
skotið sér þar undan. Þá verður vald hans brotið niður
utan frá. Hins vegar gengur þýzka peningavaldið hart
að innan frá. Hann getur látið gefa atvinnuleysingjum
mat á afmælinu sínu, en hann á ekki afmæli nema einu
sinni á ári. Ef Hitler ætlaði að vinna það til þess að
halda völdum sínum, að uppfylla einhvern hluta
þeirra stefnuskráratriða sinna, sem tekin eru frá jafn-
aðarmönnum, mundi veldi hans verða brotið niður inn-
an frá þrátt fyrir öll valdatækin, sem hann hefir í
höndum. Hann verður að ganga sína beinu braut hins
fullkomna fjandskapar við verkalýðinn, gera eigur
hans, sjóði, samvinnufélög, blöð, banka, sparisjóði, upp-
tæk, og láta ógnarvald barsmíðanna og misþyrminganna
vofa yfir hverjum einstaklingi, eins og allur heimur-
10
y