Kyndill - 01.03.1933, Page 18
Kyndill
Nazisminn og forráðamennirnir
Papens. 1 stjórninni voru að eins tveir nazistar auk
Hitlers, Frick innanríkisráðherra og Göring. Og þar að
auki höfðu junkararnir bundið Hitler með „samningi"
um löghollustu. í sínum vesæla barnaskap og skilnings-
leysi á öllum aðstæðum og eðli þessa flokks. Eins og
Hitler mundi halda nokkra samninga! Og svo átti það
að vera trygging fyrir því að öllu væri óhætt, að
Göring var raunverulega undirmaður Papens, sem hafði
öll völdt í Prússlandi samkvæmt tilskipun Hindenburgs.
En þrátt fyrir allt þetta, sem ekki voru annað en gamal-
dags pappírstryggingar, þá var það Göring, sem öllu
réði. Og jafnvel í kosningunum var Hugenbergs og
Papens ekki getið, ekki einu sinni Hugenbergs, gamla
Krupp-forstjórans, gamla alþýðusvikarans, sem gifti
sig inn í eina ríkustu fjölskylduna í Frankfurt am
Main og seldi sig vopnaauðvaldinu þýzka og hefir um
síðastliðin ár verið einn harðsnúnasti fjandmaður þýzks
verkalýðs. En nú gnístir hann tönnum um það bil sem
hann er hrakinn af valdasviðinu af Hitler, yfir því
að hafa látið hrekjast fyrir nazistum af heigulslegum
hliðsjónum um það, að beita ekki hervaldi sjálfur.
Löngu fyrir kosningarnar 5. marz hafði allur kosn-
ingaundirbúningurinn orðið eins og risavaxinn skrípa-
leikur. Kommúnistum eru bannaðir allir fundir. Og
hvar sem jafnaðarmönnum var leyft að koma saman,
voru þeir alt af á nálum um að eitthvert leiguþý naz-
ista tæki að æpa forboðna hluti eða koma á ókyrð, sem
undantekningarlaust leiddi til þess, að lögreglan hóf
skothríð. Blöð kommúnista og jafnaðarmanna voru að
12