Kyndill - 01.03.1933, Síða 22

Kyndill - 01.03.1933, Síða 22
Kyndill Na2isminn og forráðamennirnir sveitunum var skipað að hafa blysfarir í hverri borg og þorpij í landinu, einkum meðfram landamærum. Það kvöld flaug Goebbels áleiðis til Austur-Prússlands og hafði útvarp í flugvélinni. Hélt hann hvatningaræðu úr loftinu, sem útvarpað var jafnharðan. Komst hann þá meðal annars svo að orði: „Ég er yfir Pólska hliðinu. Ég sé Þýzkaland beggja megin. Landamærin eru öll í báli.“ Brennuvargurinn talaði hugfanginn um eldinn eins og títt er um afbrotamenn, sem af sjúkdómsástæð- um fremja glæpi. Gyðingamálin eru þau, sem mest hefir verið talað um upp á síðkastið, og hvernig sem þýzka stjórnin tekur í þau mál og hverju sem hún lýsir yfir, þá ræður andúðin í garð Gyðinga, sem vitanlega er ekki tii neins að neita, ekki litlu um þann hug, sem blaðavald heimsins ber til Þýzkalands um þessar mundir. Árum saman hafa naz- istar hamast á móti Gyðingum og lofað þjóðinni hefnd. Að því er foringjana snertir, segir Harrison Brown, er þetta mest atkvæðaveiðibrella, sem fyrir dugnað Goeb- bels hefir tekizt betur en nokkurn skyldi gruna. Harrison Brown segir skemmtilega frá aðferðum naz- ista í Gyðingamálunum: „Ég hefi í fórum mínum prent- að bréf, sem þrýst var í lófa kunningjakonu minnar í Berlín s. 1. sumar. Það hljóðar á þessa leið: „Þú ert í nánum kynnum við Gyðing. Það er ósæmilegt af þýzkri konu að líta við Gyðingi og þaðan af ósæmilegra að eiga mök við hann. Vér gerum ráð fyrir að þér sé ekki ljós þýðing breytni þinnar og vörum þig við. Ef frekari rannsóknir vorar leiða það í ljós, að þessi viðvörun 16

x

Kyndill

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kyndill
https://timarit.is/publication/386

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.