Kyndill - 01.03.1933, Page 23

Kyndill - 01.03.1933, Page 23
Nazisminn og forráðamennirnir Kyndill hefir ekki nægt, pá verður nafn pitt skráð meðal þeirra kvenna, sem eiga ekkert kynstofnsstolt og hafa gefist Gyðingum. 1 hinu nýja Þýzkalandi mun sýnilegt mark verða skorið eða brent á andlit slíkra kvenna til varn- aðar öllum þýzkum mönnum. Haltu ekki að þetta sé glens eða innantóm hótun .Þú hefir verið vöruð við og verður aðgætt framvegis." Um kosningarnar og eftir fóru félög Gyðinga þess á leit, að þeir nytu verndar lögreglunnar. Göring lofaði þá, að líf heiðarlegra Gyðinga skyldi verða verndað. Nokkrum dögum seinna kom yfirlýsing í ræðu, þar sem Göring „kveðst neita því að lögreglan sé varnarlið fyrir Gyðingabúðir. Það verður að lokum að stöðva þá hégilju, að hvaða þorpari sem er geti kallað á lögregl- Una hvenær sem hann fær makleg málagjöld. Nei, lög- reglan verndar hvern þann mann, sem heiðarlega geng- ur franij í 'Þýzkalandi, en hún er ekki til þess að vernda þorpara og flakkara, svindlara og föðurlandssvikara. Þýzkaland í [dag er ekki Þýzkaland Briinings og Strese- nianns.“ Og þessi óvanalega skýra ræða endaði á orðunum: Árum saman höfum vér sagt þjóðinni: Þú getur gert upp reikningana við svikarana. Vér stöndum við orð vor. Það er verið að gera reikningana upp.“ Og hvernig eru þessi reikningsskil ? Ég skal að eins nefna nokkur dæmi. Þau eru öll tekin úr borgarablöð- um, sem stjórn nazista leyfir. Annars hefi ég vikum saman haft fyrir augum bunka slíkra ómótmælanlegra fregna. Það má rekja blóðferilinn um alt Þýzkaland nftir umsögnum þessara blaða. Hvað haldið þið að það 2 17

x

Kyndill

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kyndill
https://timarit.is/publication/386

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.