Kyndill - 01.03.1933, Qupperneq 26
Kyndill
Nazisminn og forráðamennirnir
um var haldið áfram. Hér höguðu nazistar mispyrming-
unum pannig, að Budig var rifinn úr öllum fötum og
laminn miskunnarlaust þangað til hann var fallinn í
óvit. Ásamt honum höfðu tvær konur verið teknar. Þær
voru ekki lamdar, en píndar til að horfa upp á mis-
pyrmingarnar á hinum afklædda manni. Þær fengu
óstöðvandi grátkrampa af viðbjóði og hræðslu. Þetta
er algeng aðferð nazista nú, að láta konur, sem er haldið.
horfa upp á misþyrmingar vina sinna eða vandamanna,
unz þær eru orðnar hálf vitfirtar. Oft er þeim misþyrmt
á sama hátt. Það er alsannað mál, að það er höfuðyndi
nazista að pína ofani í fórnardýr sín laxerolíu og lemja
þau síðan unz meðalið fer að verka I húsakynnum fas-
ista hafa farið fram svo hryllilegir glæpir, að þeim
verður ekki með orðum lýst. Þetta eru verðir siðgæðis-
ins, kristninnar, föðurlandsástarinnar, spámenn framtíð-
arinnar, skaparar hins nýja ríkis, sem á að vera laust
við alla auðmenn og alla öreiga! Fyrirmyndir landeyðu-
skrílsins, sem kennir sig við þjóðernisstefnu hér.
Hans Spiro hét foringi baráttuliðs í einu íþróttafélagi
jafnaðarmanna. Áhlaupasveitarmenn tóku hann og
drógu í hús nazista í Prinzenstrasze. Þar var hon-
um misþyrmt. Því næst var farið með hann í Hede-
mannstrasze og misþyrmingunum haldið áfram. Síðan
hverfur hann um hríð. Nú er nýbúið að draga hann
upp úr einum skurðinum við Spree skorinn á háls.
Þetta verður að nægja. Þannig gera frelsarar þjóð-
arinnar reikningana upp, eins og fyrirboðið hefir verið.
Ég veit ekki hve margt væri upp að telja. „Eftir 10 ár
20