Kyndill - 01.03.1933, Page 27
Nazisminn og forráðamennirnir
Kyndill
skal enginn Þjóðverji skilja orðið marxismi,“ er eitt af
slagorðum nazista .Það á að sýna börnunum fram á
gjaldþrot marxismans og frjálslyndu stefnanna, segir
Frich. En veri þeir alveg rólegir. Það er alveg eins auð-
velt fyrir þá að lögbjóða: Eftir 10 ár skal enginn hugsa
rökrétta hugsun' íiÞýzkalandi. Þess vegna á að brenna
allar bækur, sem ekki kenna yfirstéttardýrkun, hernað-
aræði og þessa hákristilegu föðurlandsást þrælafóget-
anna og barsmíðahundanna. Meðan bókabálin loguðu
um Þýzkaland, horfði allur heimurinn í undrandi hryll-
ingu á aðfarir þessa lýðs. Þann dag reis múrveggur af
óyfirstíganlegri andúð og fyrirlitningu á þessu landi
og stjórnendum þess, í öllum löndum. Ég hefi haft
milli handa blöð borgarastéttanna af öllum Norðurlönd-
um og frá Englandi, Frakklandi, Hollandi, Canada og
Bandaríkjunum. Og það gæti verið fróðlegt fyrir menn
hér að vita, að á allri línunni, frá harðsnúnasta íhaldi til
fóttækustu kommúnista, hefir blaðavald þessara landa
annaðhvort snúist beint gegn Þýzkalandi, eða þá að
niinsta kosti tekið upp menningarlega baráttu gegn
villimenskunni. Það er að eins eitt land, sem mér er
kunnugt um, þar sem íhaldið er svo aðþrengt, úrræða-
laust, heimskt og siðspilt, að það hefir klýjulaust tekið
við boðskap nazistanna og aðferðum eins og hjálpar-
fáði í hörmungum sínum, og sém' í gegnum barsmíðar,
utorð og fangelsanir dreymir um einræði og náðuga
daga. Það er hér á Islandi. Það er íhaldið persónugert í
gáfum Morgunblaðsins og kristindómi Vísis, stjórnmála-
Þroska Jóns Þorlákssonar og Magnúsar dósents, ihaldið
21