Kyndill - 01.03.1933, Page 29

Kyndill - 01.03.1933, Page 29
Nazisminn og forráðamennirnir Kyndill Jafnvel í JÞýzkalandi vita þeir að þrátt fyrir her, lög- reglu, áhlaupasveitir og morða- og misþyrminga-flokka, sem eru skipulagðir á laun, tekst þeim aldrei að halda völdunum, nema hægt sé að vinna alþýðuna með illu eða góðu. Þess vegna ritar Reventlow greifi á þessa leið í 14. tölubl. Reichswarte nú fyrir skemmstu: „Vér verðum þess vegna hver og einn að gera okkar ýtrasta til þess að komast inn á verkamennina, sem leiddir hafa verið afvega með marxisma. Hér er um sál verka- mannsins að tefla, og þeir verða ekki unnir nema með því að ná til sálar þeirra. Og ekki skal skorta á að það verði reynt af nazistum.“ Ég get ekki neitað mér um að segja ykkur dæmi þess, hvernig nazistar reka þetta sálgæzlustarf meðal afvegaleiddra verkamanna. í marzlok var rekstursráðsfundur) í firmanu Sommer- feld hjá Berlín, og átti þá að endurkjósa rekstursráðs- fulltrúa verkamanna. Verkamaður, sem ekki er nazisti, var einróma endurkosinn. Daginn eftir koma 60 áhlaupasveitarmenn vopnaðir og taka fulltrúann, fara með hann til skógar og ætla að skjóta hann. Skógarverðir komu'í veg fyrir það og fulltrúinn flýr. Um nóttina er hann tekinn í íbúð sinni, færður í General Papenstrasze og píndur þar í fjóra 6aga miskunnarlaust með svipuhöggum. Hann er fyrst látinn laus þegar hann hálfvitskertur af örvæntingu og kvöium er búinn að skuldbinda sig til að ganga í verka- mannaflokk nazista. Þannig tölum vér við sálir verka- manna, segir Reventlow greifi. 23

x

Kyndill

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kyndill
https://timarit.is/publication/386

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.