Kyndill - 01.03.1933, Page 31
Nazisminn og forráðamennirnir
Kyndill'
heimska, í endalausri röð, framin af glæpamönnum.
itielludólgum, svindlurum, bröskurum, svikurum, sið-
spiltum skólalýð, sinnulausum og örvæntandi miðstétt-
armönnum. Þetta eru leirlappirnar undir hinu volduga
líkneski, Hitlersvaldinu, sem er persónugert í hásum
hvæsandi ofstækismanni, með vitfirringu blóðs og
grimdar markaða í alla andlitsdrætti, sauðarsvip lítil-
niennisins um afsleppt Slava-ennið og lævísi refsins í
augnaráðinu. En þó að þetta slepjaða villidýr leggi nú
hramminn um stund dauðaþungan og eyðandi á alþýðu
Mið-Evrópu, þá kemur samt sem áður dagur hefndar-
innar — dagur hins nýja réttlætis.
Vitsmunaafl allrar veraldar vinnur á móti villimennsk-
unni. Réttlætiskennd allrar veraldar vinnur á móti
grimdinni.
Samtök undirstéttanna velta ógnarvaldinu, ekki með
hjassi og rökræðum, heldur með átökum, baráttu, fórn-
um, — blóði, sem drýpur fyrir skammbyssum nazista-
niorðingjanna, drýpur ofan á sléttar hellurnar, þar sem.
verkamenn svara ríkislögreglunni, blóði, sem drýpur
fyrir vopnum hins hvíta dauða í fangelsum glæpa-
uiannanna, blóði, sem drýpur í þverrandi lífsþreki hins
Undirokaða fjölda. En „það blóð hefir blágrýtið holað“,
sagði Þorsteinn Erlingsson endur fyrir löngu. Það
verður að lokum sú elfur, sem sprengir af sér stíflur
Þessarar villimensku, kúgunina, nazismann.
25