Kyndill - 01.03.1933, Side 40
Kyndill
Falskar ávísanir
lán í fyrradag. — Vertu feginn að þú fékkst ekki lán
með þessum okurkjörum, — þú krafsar þig fram úr
því, sagði Magnús. —
Mikið djöfull er Skotinn sniðugur að brenna korn-
inu, strákar, — sagði Ragnar. — En skyldum við fá
vixillán til whisky-kaupa, bætti hann við. —
Nei, takið þetta nú alvarlega, — ég á að borga út á
morgun ,sagði Bernharð.
— Láttu mig þá heyra alla málavöxtu, — sagði
Ragnar.
— Togarinn kemur á mánudaginn með 570 pund, en
mig vantar peninga til þess að borga út vinnulaun í
landi, fyrir hádegið. —
— Ég sé ráð við því, — sagði Ragnar. — Pú
borgar út eftir hádegi á morgun. — Áttu ekki ávísana-
hefti ? —
— Auðvitað; — heldur þú að togarafélag eigi ekki
ávísana-hef ti ? —
Ágætt, þú gefur út ávísanir, — kaldur og rólegur. —
— Ég á ekkert fyrir þeim maður. —
Gerir ekkert — bara halda jafnvæginu.
— Þú ert glæpamaður, — ég fæ allar ávísanirnar í
hausinn aftur og verð settur í steininn. —
— Engin hætta. Bankinn lokar kl. 1. Kaupmennirnir
kaupa ávisanirnar, framvísa þeim ekki fyr en eftir
hádegi á mánudaginn, og þá hefir þú lagt pundin inn.
— Ég þekki rekkjuværð reykvískra kaupmanna á
mánudagsmorgnana. —
— Það er ljós í þessu hjá þér Ragnar. — Ég gef út
34