Valsblaðið - 01.05.1959, Side 5

Valsblaðið - 01.05.1959, Side 5
VALSBLAÐIÐ 3 allar á staðnum síðan svo augljós- ar, að ekki er hægt að komast hjá að taka eftir þeim og meta að verðleikum. f ársbyrjun 1944 samþykkti Hlíðarendanefnd að segja upp leigusamningum á eigninni, leita samlþykkis stjórnarinnar til að stofna til bílhappdrættis og hefj- ast handa um að breyta fjósi og hlöðu í félagsheimili og búnings- og baðklefa. Eftir að 'húsin losnuðu úr leigu var hafizt handa um framkvæmd- ir. Sóttist frekar seint í fyrstu, enda oft erfitt um efnisútvegun, enga styrki að fá út á framkvæmd- irnar, en öll vinna sjálfboðavinna. Vandað var til allra verka svo sem verða mátti og leið brátt að því, að tekið var í notkun búningshe'r- bergi og baðldefi. Félagsheimilið var síðan fullgert og tekið í notk- un 3. júlí 1948. Síðan rekur hver stórfram- kvæmdin aðra. Skilningur manna á æðri stöðum fyrir þýðingu þess- arar sta'rfsemi hefur gerbreytzt og fæst nú verulegur fjárstyrkur úr bæjarsjóði og ríkissjóði út á unn- in verk. Strax og lokið var við malar- völlinn, en hann var vígður 3. sept. 1949, va'r hafizt handa um vandaða og kostnaðarsama fram- ræslu fyrir grasvöllinn. Sett í það kílómetrar af brenndum leirrör- um frá Danmörku, þúsund bíl- ihlöss af rauðamöl og feikn af að- fluttri mold, áðu'r en grasi var sáð. Grasvöllurinn hefur þegar verið í notkun um nokkur ár og munu aðrir grasveliir vart betri hér. Áður en grasvallargerð var lok- ið, var hafinn undirbúningur að byggingu hins glæsilega íþrótta- 'húss, sem nú þegar hefur verið tekið í notkun og reynzt mjög vel, enda vandaðasíta hús sinnar teg- undar á íslandi. Smíði íþrótta- hússins er ekki að fullu lokið, en vonir standa til að því verkefni verði hægt að ljúka fyrir næsta haust. Verður þá væntanlega þeg- ar búið að skrýða allt landið grasi og ýmsum trjágróðri, en að því verki loknu, mun vart á löngu líða, þar til hafist verði handa um byggingu nýs og fullkomins fé- lagsheimilis. Engan þeirra, sem að kaupun- um á Hlíða’renda stóðu, mun hafa órað fyrir, að hægt yrði að fram- kvæma þau ósköp, sem raun ber vitni um, á aðeins 20 árum. Að þetta skuli hafa tekizt, er fyrst og fremst að þakka þeim breyttu viðhorfum, er skapazt hafa síðan, m. a. í styrkveitingum 'ríkis og bæjar til íþróttamannvirkja og félagsheimila, svo og því, að fé- lagið hefur átt á að skipa dug- miklum athafnamönnum eins og Jóhannesi Bergsteinssyni, Úlfari Þórðarsyni, Sigurði Ólafssyni, Andrési Bergmann og fleirum, sem fórnað hafa margl-a ára frí- tíma sínurn til að starfa að þessum mannvirkjum. Það verður vart skilið við þess- ar minningar án þess að geta þess, hverjir skipuðu þá stjórn, sem svo samhent og ákveðin lagði út í kaupin á Hlíðarenda 10. maí 1939 og stigu þarmeð eitt mesta gæfu- spor í sögu félagsins. Stjó'rnina skipuðu: Ólafur Sigurðsson form., ShjUcv Sera SriÉrils aÉ - J'!fiifann J'i 1 tilefni af 90 ára afmæli séra Friðriks Friðrikssonar á s.l. ári, var samþykkt að reisa af honum myndastyttu á félagssvæði Vals, svo fljótt sem við yrði komið. Nefnd var skipuð í málið, þeim dr. Jóni Sigurðssyni borgar- lækni, og e’r hann formaður, Sveini Zoéga, IJlfari Þórð- arsyni, Braga Kristjánssyni, Ólafi Sigurðssyni og Guð- laugi Þorlákssyni. Nefndin hefir unnið að því að fá gerða afsteypu að mynd, sem Ríkharður Jónsson gorði af séra Frið’rik. Afsteypan var gerð úti í Kaupmannahöfn og er nú fullbúin og mun myndastyttan koma ein- hverja næstu daga til lands- ins. Enn hefir ekki verið ákveðinn staður fyrir mynd- ina í landi Hlíðarenda, en á- kvörðun um það mun verða tekin áður en langt um líðu'r. v Grímar Jónsson, Hólmgeir Jónsson, Hrólfur Benediktsson, Jóhannes Bergsteinsson, Sigui'ður Ólafsson og Sveinn Zoéga. Að lokum árna ég félaginu allra heilla í tilefni þessa afmælis og óska þess, að Hlíðarendinn og öll þau mannvirki, sem þar verða byggð, megi færa æsku Reykjavík- ur þá blessun, sem lá að baki kaup- unum og öllum framkvæmdum þar síðan. Ó. S.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.