Valsblaðið - 01.05.1959, Page 8
6
VALSBLAÐIÐ
BÓNDI nokkur hafði tvo vinnumenn.
Einn morgun bað hann þá fara út á
akurinn til að plægja. Um hádegisbilið
kom hann til þeirra til að sjá hversu
verkinu miðaði.
Hann leit fyrst á plógför annars
þeirra, og sá að þau voru öll skökk og
skæld. Hann spurði hverju þetta sætti.
Vinnumaðurinn svaraði: Eg hafði svo
gaman af að sjá, hvefnig hið beitta
plógjárn skar moldina og bylti henni við,
að ég gætti ekki stefnunnar, en leit að-
eins niður fyrir mig, í plógfarið.
Er hann kom til hins, sá hann að
plógför hans voru þráðbein og jöfn.
Hann spurði þá, hversu hann hefði bor-
ið sig að. Sá svaraði: Ég tók mið af
stóra trénu þarna langt í burtu. Ég
hafði aldrei augun af því, en stefndi
beint á það. Hann tók stefnumið, setti
sér ákveðið mark að keppa að. Hann
fór beina braut og hlykkjalausa. Hann
leysti starf sitt vel af hendi. Hinn
skeytti ekki um stefnuna, heldur lét ráð-
ast hversu færi. Hann leysti starfið illa
af hendi. Braut hans var skæld og skökk.
Vér, sem störfum í Val, tökum oss
seinni vinnumanninn til fyrii-myndar.
Mörkum oss stefnumið, hvort heldur
tekur til æfinga eða hins almenna fé-
lagsstarfs. Minnumst í því sambandi
orða séra Friðriks, er hann m. a. lét
falla í vígsluræðu Vals-vallarins 1911:
„. .. . munum ávallt eftir því að leikur
vor og félagsstarf er ekki aðeins stund-
argaman, heldur á það að vera til þess
að gera oss betri, göfugri, heiðarlegi’i
og karlmannlegri . .. .“ Eins og allir
fingur eru jafnir er í lófann kemur,
er starf allra flokka, nefnda og ráða
félagsins jafn nauðsynlegt til að ná
þessu marki, sem þai-na er rætt um.
Miklum áfanga er þegar náð í störf-
um Vals, sem þakka ber. Má þar minna
á kaupin á Hlíðarenda, sem um þessar
mundir á 20 ára afmæii sem aðseturs-
staður Vals og byggingu þeirra íþrótta-
mannvirkja, sem þar eru þegar komin.
En mikið er ennþá ógert.
Senn á Valur 50 ára afmæli. látum
þau tímamót vera oss stefnumið að því
marki að gera Hlíðarenda að einum feg-
ursta blettinum í Reykjavík. En slíkt
tekst aðeins með því, að allir Valsmenn,
yngri og eldri, leggi þar að huga og
hönd.
Megi íþrótta- og félagsstarf Vals
skapa þann menningararf sem æska
Vals og reykvísk æska yfirleitt getur
verið stolt af.
E. B.
Framh. af síðu 5.
mættu til dæmis á einni æfingu
um fjörutíu manns, sem mun vera
met hjá félaginu. Æft var tvisvar
í viku, á þriðjudögum og föstu-
dögum. Auk þess fékk annar fl.
sértíma einu sinni í viku og var
að því mikil bót.
Hefur svo þessi aðsókn hald-
izt fram á þennan dag?
Nei, hún hefur nú reyndar ekki
gert það. Apríl er alltaf erfiður
mánuður hvað aðsókn sne'rtir,
margir eru að lesa undir próf og
dregur það eðlilega úr aðsókn.
Reyndar er ég ánægður með hvað
strákarnir hafa mætt í vetur og
ef svo heldu'r áfram kvíði ég engu
um framtíð Vals á sviði hand-
knattleiksins. Það er ekki að efa
að í þessum hóp er mikið af efni-
við sem þarfnast aðeins þjálfunar,
þá kemur þetta.
En hvað um Islandsmótið? Ert
þú ánægður með það ?
Að vísu er ég ekki ánægður með
mótið í heild og verð ekki fyrr en
bikarinn er kominn á hilluna, en
ég er samt nokkuð ánægðu’r með
þetta mót og held að Valur sé
frekar á uppleið en hitt.
En um einstaka leiki?
Við áttum fyrsta leik við F.H.
Það var hreinasta óheppni að ná
ekki jafntefli úr þeim leik. Þetta
var skemmtilegur og spennandi
leikur allt til síðustu mínútu, nær
ómögulegt að segja til um úrslit.
Á síðustu mínútu tókst 'svo F.H.
að berja inn einu marki og leikn-
um lauk 17—16 fyri'r F.H.
Hvað kom til?
Strákarnir voru allir ákveðnir
í að standa sig svo sem frekast
væri kostur og gefast aldrei upp.
Það sást líka strax og þeir komu
inná. Þeir spiluðu nú ólíkt því sem
þeir hafa gert undanfa'rin ár. Tóku
upp spil í ríkari mæli og skutu
ekki í tíma og ótíma. Svo var það
líka gamla stjarnan Sólmundur,
hann lék með og þeir boltar sem
hann ver ekki verða ekki varðir.
Hann var ómétanlegur styrku'r,
án hans hefði þetta ekki tekizt.
Og næstu leikir?
Næst lékum við gegn K.R.
Strákarnir léku nú ekki eins vel og
gegn F.H. og í hálfleik stóð ekki
glæsilega, en það lagaðist nokkuð
og leiknum lauk með sigri K.R. 29
—18. Þetta var ekki góður leik-
ur en lærdómsríkur fyrir st’rák-
ana. Í.R.-leikurinn var ekki góð-
ur heldur. Notuð var þessi gamla
aðferð: einn, tveir, þrír, skot. enda
vann I.R. leikinn 31—19. Leikur-
inn við Fram var aftur góður. Þar
léku strákarnir létt og leikandi og
unnu 21—19 eftir skemmtilegan
leik. Leikurinn við Ármann var
svo síðasti leikurinn, hann var
fjörugur og skemmtilegur og
vannst, 28—23. Valur fékk því
4 stig út úr mótinu og skoraði 102
mörk gegn 119. Þetta e'r betri ár-
angur en sumir bjuggust við, því
sumir álitu, að Valur mundi
„fal'la“ í 2. deild.
Hvað um 1. flokk?
Það er góð breidd í fyrsta flokki
og strákarnir stóðu sig vel. Leik'”
fóru þannig: Valur Þróttur 7—-7.
Valu’r Fram 12—10. Valur F.H.
10—15.
En 2. flokkur?
Annar flokkur hefur staðið sig
vel í vetur. Það er eins með hann
og fyrsta flokk, mikil breidd og
mörg góð efni sem vert er að gefa
gætur. Leikir hjá 2A fóru þannig:
Valur K.R. 13—13. Valur Pram
12—10 og Valur Þróttur 10—14.
Annar B stóð sig líka með ágæt-
um, spilaði þrjá leiki, vann tvo en
tapaði einum.
Hvað um framtíðina?
Nokkuð hefur verið rætt um
Færeyjaför og væri mjög æski-
legt ef hún kæmist í framkvæmd.
Það mundi örfa strákana og þeir
mundu þroskast félagslega, en það
er einmitt það sem okkur vantar,
félagslega einingu. I ferðum sem
slíkum kynnast menn betur en hér
heima, þjappast saman í eina heild
og halda betur saman þegar lieim
kemur.
Eg vil að lokum hvetja strákana
til að æfa knattspyrnu í sumar.
Með því viðhalda þeir úthaldinu,
fá betri yfirsýn yfir leikinn og e'ru
þess vegna að öllu leyti betur und-
ir veturinn búnir. Þess vegna:
Allir út á völl í sumar og æfið.
Já, strákar, látið þið sjá ykkur
á Valsvellinum í sumar það skai
verða tekið vel á móti ykkur.
J. O. O.