Valsblaðið - 01.05.1959, Blaðsíða 21

Valsblaðið - 01.05.1959, Blaðsíða 21
VÁLSBLAÐIÐ apvi œii hendis að minna á hið merkilega starf, sem hinn þjóðkunni íþrótta- frömuður Sigurjón Pétursson vann á sinni tíð, einmitt á félagssvæði Aftureldingar, með starfrækslu íþróttaskóla og skipulagningu íþróttamóta að Álafossi, sund- keppni þar og hinu víðfræga Ála- fosshlaupi, sem mörgum er minn- isstætt og þótti ætíð merkur íþróttaviðburður. Sundlaug sú, er Sigurjón kom upp að Álafossi, hef- ir og verið sannur heilsubrunnur sveitarinnar. Er enginn vafi á því að þetta merkilega og margþætta íþróttaframtak Sigurjóns hefir haft mjög hvetjandi áhrif á Aft- ureldingu til enn aukinna dáða á sviði íþróttanna. Meðal stofnenda og forgöngu- manna Aftureldingar voru m. a. Steindór Björnsson frá Gröf og Guðrún systir hans, auk ýmsra annarra ágætra kvenna og karla. Formaður Aftureldingar er nú Guðjón Hjartarson. Skiöafélag Reykjavíkur varð 45 ára, stofnað 2. febrúar 1914. Það var norðmaðurinn L. H. Múller, sem meginþáttinn átti í stofnun félagsins og ruddi með því braut- ina fyrir skíðaíþróttina hér á landi. Verður þetta brautryðjenda- Stefán Björnsson. starf Múllers seint fullþakkað eða metið að verðleikum. L. H. Múller var fyrsti formaður Skíðafélagsins og gegndi því forystuhlutverki til dauðadags, en að honum látnum tók Kristján Skagfjörð við og er hann andaðist árið 1947 var Stef- án Björnsson forstjóri kjörinn formaður og hefir gegnt því starfi síðan. Skíðaskálinn í Hveradölum er eitt af stórframkvæmdum þessa merka félags, en hann var byggð- ur á árunum 1934—35 fyrir hvatn- ingu Múllers og kostaði fullgerður sjö þúsund krónur. Tilgangur með stofnun Skíðafélagsins var ekki fyrst og fremst sá, að skapa keppnisfólk, heldur hitt, að opna augu ungra og gamalla fyrir skíða- íþróttinni og gera hana að almenn- ingseign, kenna konum og körlum að meta hollustu þá, sem er í því fólgin að fara á skíðum um snævi- þakta jörð og teiga að sér ferskt fjallaloftið jafnframt því að kenna mönnum að ferðast um óbyggðirn- ar að vetrarlagi. I þessu trúboði hreinleikans og heilbrigðinn- ar hefi'r Skíðafélagi Reykjavík- ur orðið mikið ágengt þann fjóra og hálfa áratug, sem það hefir starfað. Félagið minntist þessara tíma- móta í sögu sinni og starfi með veglegu samsæti í skála sínum í Hveradölum á afmælisdaginn. E. B. iBR og KRR Tvenn mikilvæg íþróttasamtök, sem Valur á aðild að, eiga merkis- afmæli á þessu sumri. Eru það Iþróttabandalag Reykjavíkur, sem verður 15 ára í ágústmánuði, og Knattspyrnuráð Reykjavíkur, sem verður 40 ára í þessum mánuði. K.R.R. var stofnað að frum- kvæði Egils heitins Jacobsens, hins ötula forvígismanns um knattspyrnu hér í bæ og helzta knattspyrnudómari um árabil. Var hann og fyrsti fo'rm. ráðs- ins. Knattspyrnuráðið hefur verið knattspyrnufélögunum og knatt- spyrnunni í heild hin mesta lyfti- stöng og haft forgöngu um mörg merkileg mál, m. a. stofnun Knatt- spyrnusambands Islands. Hefur Í9 Jón Guðjónsson. K.R.R. notið vaxandi vi’rðingar þeirra er til þekkja með hverjum áratugnum, enda hafa margir af beztu mönnum Reykjavíkurfélag- anna átt þar sæti um lengri eða skemmri tíma. Núverandi form. K.R.R. er Jón Guðjónsson, löngu þekktur meðal knattspyrnumanna fyrir störf sín í Fram og ýmsum sameigin- legum nefndum. Valsblaðið óskar K.R.R. allra heilla í tilefni fertugsafmælisins. ÁRSÞING íþróttabandalags Reykjavíkur var nýlega haldið í Tjarnarcafé, að viðstöddu fjöl- menni. Var prentuð ársskýrsla bandalagsins afhent hverjum þingfulltrúa. Var hún hin vandað- asta og í henni voru hinar marg- víslegustu og merkilegustu upp- lýsingar, sem bandalaginu og íþróttahreyfingunni er hin mesta nauðsyn að hafa að staðaldri við hendina. Það er þó ekki sök stjórn- Gísli Halldórsson.

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.