Valsblaðið - 24.12.1962, Qupperneq 10
8
VALSBLAÐIÐ
og aflienti bikar sem unninn var í sam-
bandi við innanhússmót í knattspyrnu
og annar flokkur stóð að.
Rætt var um viðurkenningu til leik-
manna fyrir langan leiktíma eða til
manna, sem leikið liafa tiltekna tölu
leikja.
Margt fleira var rætt á fundinum,
sem var fjölmennur.
Fundarstjóri var Valgeir Ársælsson
og fundarritari Einar Björnsson.
F. H.
Úr skýrslu
handknattleiksdeildar
íslandsmeistrar Vals 1962. TaliS frá vinstri: Dóra Gunnarsdóttir, Sigrún Geirsdóttir, Svanhildur
SigurSardóttir, Bára GuSjónsdóttir, GuSbjörg Árnadóttir, SigríSur SigurSardóttir, Vnnur Her-
mannsdóttir, Malla Magnúsdóttir, Hrefna Pétursdóttir, Erla Magnúsdóttir, Elín Eymundsdóttir.
Á aðalfundi Handknattleiksdeildar-
innar, sem haldinn var að Hlíðarenda
12. okt. s.L, lagði stjórnin fram ágæta
skýrslu um starfsemi deildarinnar á
liðnu starfsári, og ber hún með sér að
vel hefur verið unnið og markvisst og
margir lagt þar hönd að verki.
Verður hér stuttlega sagt frá því
helzta.
Stjórnin hélt 27 bókaða fundi á ár-
inu, sem verið hafa mjög vel sóttir.
Þjálfun handknattleiksfólksins hafa
félagsmenn annast, en það voru:
Árni Njálsson annaðist þjálfun meist-
ara- og annars flokks kvenna.
Þórður Þorkelsson og Sigurhans
Hjartarson sáu um meistara- og annan
flokk karla.
Pétur Antonsson þjálfaði þriðja
flokk.
Stefán Ó Árnason og Þórarinn Ey-
þórsson þjálfuðu fjórða flokk.
Stjórnin gerði tilraun til þess að fá
danskan handknattleiksþjálfara fyrir
keppnistímabilið sem nú er að byrja,
en af því gat ekki orðið á þessu hausti,
en formaður deildarinnar kynntist
þjálfara í Danmörku, sem ef til vill lief-
ur áhuga á því að koma hingað næsta
haust.
Á liðnu starfsári átti Valur kost á
því að senda mann á þjálfaranámskeið
í Danmörku og ákvað stjórn deildar-
innar að velja Þórarin Eyþórsson til
fararinnar, en hann er kunnur fyrir á-
huga sinn og starfsvilja.
Á miðju sumri ákvað stjórnin að at-
huga livort ekki væri athugandi að
reyna að byrja æfingar innanhúss dá-
lítið fyrr en venjulega. Æfingar þessar
voru illa sóttar af karlaflokkunum, en
betur af stúlkunum.
11. flokkur 1962. Aftari röS frá vinstri: Ingi Eyvinds formaSur, Þórir Jónsson, Harry SigurSsson,
SigurSur GuSmundsson, Stefán Sandholt, ÞórSur Þorkelsson þjálfari. — Fremri röð frá vinstri:
SigurSur Dagsson, Jón B. Ólafsson, Gylfi Jónsson.
MÓT OG LEIKIR FLOKKANNA
Meistaraflokkur karla:
1 Reykjavíkurmótinu urðum við nr.
4—5 ásamt KR, skoruðum 66 mörk
gegn 74 og hlutum 6 stig.