Valsblaðið - 24.12.1962, Page 20
18
VALSBLAÐIÐ
hald, og lagði allt í þann fyrri, og fór
í bað.En þá komu leiðtogar Mílan og
kröfðust þess að ég héldi áfram, varð
ég auðvitað að gera það.
INTER SENDIR VARALH)
I síðari hálfleik var það galdra-
mennska og þol Gunnars Gren sem
bjargaði mér. Þessi 42 ára gamli leik-
maður hafði úthald á við ungling, og
hljóp inn í eyðurnar, til þess að auð-
velt væri að finna liann, og sendingar
hans voru svo nákvæmar að það voru
engir erfiðleikar að taka á móti þeim,
þetta sparaði orku mína svo um mun-
aði.
Gunnar Gren sannaði enn einu sinni
að hann ber nafnið með réttu, sem
hann hefur fengið að auknefni, en það
er „Prófessorinn“.
Við vorum yfirleitt í sókn og komið
er fram í síðari liálfleik, og brúnin á
Inter-mönnum farin að þyngjast. Vit-
um við þá ekki fyrr til, en að upp úr
jarðgöngunum kom fimm óþreyttir og
yngri leikmenn og taka stöður hinna
fimm sem fyrir voru og fengu litlu
áorkað. Þetta kom okkur í opna
skjöldu, og snerist nú allt við og Mílan
varð að leggjast í vörn.
Þetta liafði víðar áhrif, Mílan-áhorf-
endur vildu ekki taka þessu með þögn
og þolinmæði. — I blöðum hafði stað-
ið að aðeins mætti skipta um menn í
fyrri hálfleik eða í leikhléi en síðan
ekki. Þeim þótti því heldur brotin lög
á sínum mönnum og mátti nú sjá víða
um áhorfendapalla átök hörð og orða-
skak, og voru víða áflog og smábar-
dagar.
Á þessum 15 mínútum, sem þessir
,,ólöglegu“ nýliðar Inter voru með,
skoruðu þeir 2 mjög góð mörk. Við
reyndum að sækja ef færi gafst og átti
ég tvö þessi „gömlu góðu“ af löngu
færi, sem skullu í stöngum, við dynj-
andi lófatak áhorfenda.
„JARÐARFÖR“
EFTIR ÓSIGUR
Því má skjóta hér inn til gamans, að
aðdáendur félaganna taka upp á ýmsu
til að undirstrika gleði sína yfir sigri
síns félags, og þá reynt að stríða hin-
um sigruðu sem hægt er. Það má t. d.
sjá eftir leik, sem Mílan hefur unnið,
að aðdáendur félagsins gangast fyrir
„jarðarför“.
Bera þeir líkkistu, sveipaða fána
Inter, um götur borgarinnar, og á það
að tákna að nú sé ekkert annað að gera
fyrir hinn sigraða, en að fara í gröfina.
Getur „jarðarför“ þessi orðið æði
mannmörg. Viðbrögð aðdáenda þess
sigraða, sem verið er að bera til „graf-
ar“, verða oft þau, að þeir standa á
gangstéttum og kasta ýmsu lauslegu,
skemmdum ávöxtum og öðru slíku að
„líkfylgdinni“. Eru „jarðarfarir“ þess-
ar gagnkvæmar eftir því hvor sigrar.
Eftir leikinn var efnt til veglegrar
veizlu, og leikmönnum afhentar minn-
ingargjafir og æfintýrinu lokið.
Daginn eftir fórum við Gunnar Gren
í lieimsókn til forseta Mílan-félagsins,
frá því við vorum þar, en liann dvelur
á lieilsuhæli í Varese, og fréttum við
síðar að við hefðum sloppið af þeim
sökum við fjölda blaðamanna, sem leit-
uðu okkar.
Hann sendi mér síðar boð í brúð-
kaup dótturdóttur sinnar, en ég gat ekki
komið því við að fara. Ég er viss um
að Gunnar Gren hefur líka fengið slíkt
boð.
Ég vil svo að lokum endurtaka það,
að ég trúði varla skeytinu, þegar ég
fékk það, um að koma til Mílan og
leika með gömlu félögunum. En nú,
þegar ég er kominn heim, trúi ég varla
að þetta liafi skeð, að ég hafi farið,
staðið mig vel, skorað ágætt mark, fé-
lagarnir ánægðir, félagið mitt gamla
ánægt, heyra í áhorfendunum, sem
muna mann enn. Þetta er allt eins og
eitt af æfintýrunum úr Þúsund og einni
nótt! F. H.
Viðtal viö
Sigríði Sigurðardóttur
Framh. af bls. 13.
með flokkum sínum? (Guðjón bóndi
Sigríðar er sem kunnugt er meistara-
flokksmaður í Fram). Og sei, sei nei,
um þetta er bezta samkomulag. Varð-
andi veturinn í vetur höfum við gert
svofelldan samning: Ég fer á æfingar
á þriðjudögum og þá er hann heima.
Á miðvikudögum fer hann svo á æfing-
ar og þá er ég heima, og á föstudögum
förum við bæði, en þá fáum við ein-
hvern til að gæta barnsins, svo þú sérð
að þetta er allt í lagi.
Þegar hér var komið leit undirrit-
aður á verðlaunabikara Vals sem voru
á hillum í skrifstofuherbergi í íþrótta-
húsinu, og varð að orði „þeir eru ó-
RJARIMI GUÐBJÖRIMSSON
fimmtugur
Hinn 29. nóv. s.l. átti einn í hópi
hinna ágætustu félaga Vals fimmtugs-
afmæli. Það var Bjarni Guðbjörnsson,
bankastjóri á Isafirði. Bjarni er Reyk-
víkingur, fæddur hér og uppalinn. Ekki
munu hin margvíslegu störf lians fyrir
almennings heill rakin hér. Aðeins, um
leið og honum er árnað heilla á merk-
um tímamótum, skulu þökkuð marg-
vísleg störf fyrir Val, fyrr á árum. En
í Val liefur Bjarni verið óhvikull félagi
um áratugi og er enn. Tekið mikinn
þátt í félagsstarfinu, bæði sem leikmað-
ur „á vellinum“ og sem fulltrúi í KRR
og víðar. Alltaf traustur og öruggur,
sannur vinur og félagi.
I nafni Vals og allra Valsmanna flyt-
ur Valsblaðið Bjarna innilegustu ham-
ingju óskir og segir: Heill þér fimm-
tugum með þökk fyrir samveruna á
liðnum árum í leik og starfi. EB.
venjulega gljáandi þessir“. Sigríður
brosti svolítið feimnislega, og sagði:
Við Hrefna Péturs tókum okkur til og
fægðum þá um daginn, meðan Guðjón
var í Danmörku með Fram, ég hafði
svo góðan tíma, og ég hafði telpuna
mína með mér, þetta var svo anzi gam-
an. —
Hvað vilt þú svo segja að lokum?
Aðeins það, að telpurnar standi sam-
an um liandknattleikinn og félagslífið
í Val.
F. H.