Valsblaðið - 24.12.1962, Blaðsíða 24

Valsblaðið - 24.12.1962, Blaðsíða 24
22 VALSBLAÐIÐ „Valur á aá semja prógramm“ um knatt- spyrnukennslu fyrir ungu piltana segir ÓHB. Jónsson -K Það þóttu góð tíðindi, þegar það gpurðist, að Óli B. Jónsson hefði verið ráðinn þjálfari Vals fyrir meistara- og fyrsta flokk félagsins í knattspyrnu. Félagið liafði verið í þjálfarahraki um nokkur ár, og því hlaut það að vera gleðiefni að fá svo reyndan þjálfara, sem einnig liafði sýnt í verki, að hann hafði náð góðum árangri og sýnt mik- inn áhuga fyrir knattspyrnuíþróttinni. Og við Valsmenn getum sannarlega vel við unað, þann árangur, sem hann hef- ur náð á liðnu ári. Það þótti því sjálfsagt að Valsblað- ið fregnaði um það hjá Óla hvernig honum hefði fallið vistin í Val og hvort hann væri ánægður með árangurinn í sumar, og ennfremur hvað hann hefði til mála að leggja varðandi knattspyrn- una lijá félaginu. Fer hér á eftir hvað hann hafði um þetta að segja: — Spurningunni um það hvort ég sé ánægður með árangurinn í sumar, vil ég svara: Já og nei. Með sjálfa knatt- spyrnuna er ég ekki ánægður, en með úrslitin í íslandsmótinu er ég í sjálfu sér ánægður, að komast í úrslit er allt- af eða ætti að vera nokkur mælikvarði á lið. Það verður ekki sagt að heppnin hafi elt okkur í leikjxmum í sumar, fremur hitt. Um liðið mætti segja, að vörnin er sterk og góð, og sýnir það að Valur fær næst fæst mörk í sumar. 1 framlímmni eru ekki nógu harðir strákar og ekki nógu „gráðugir“. Þeir eru liðugir leik- menn, og það er gott og blessað fyrir sig, en viss liarka verður einnig að vera fyrir hendi. Lið, sem ekki á tvö kröft- uga menn í framlínu, getur naumast búizt við miklum árangri, eða að fá miklu áorkað. Gagnvart framtíðinni vildi ég segja, að allt benti til þess, að nokkur bið yrði á toppárangri, nema alveg sérstak- lega yrði tekið á málum. Má í því sam- bandi benda á, að í öðrum flokki eru aðeins tveir menn sem hafa þá leikni annan til að bera, sem þarf í meistaraflokk í dag. Hins vegar eru það leikmenn þriðja flokksins, sem lofa góðu, og þeg- ar þeir koma til sögunnar ætti tími Vals að koma fyrir alvöru. Piltarnir í öðrum flokki, að tveim undanskildum, hafa ekki nógu góða knattmeðferð, það er þó möguleiki að laga þennan ágalla, með þrotlausum æfingum, þar sem leggja verður fram mikinn áhuga, mikla þrautseigju og mikinn vilja. 1 þessu sambandi vildi ég benda á, að eitthvað virðist hafa verið hogið við þjálfun og æfingar þessara pilta á und- anförnum árum, að þeir skuli ekki ráða yfir meiri leikni og kunnáttu, en raun ber vitni. Þess vegna bendi ég á, að félag eins og Valur, með þessa aðstöðu, ætti að tilnefna mann eða menn, sérfróða um knattspyrnumál, sem semdu ákveðið „prógram“ um tækniþjálfun ungu pilt- anna í Val, sem sérstaklega yrði notað við inniæfingar á vetrum, þar sem hinn rauði þráður æfinganna yrði, að fara í gegnum hin ýmsu atriði í meðferð knattarins, og þar reynt að taka með sem flest af því sem fyrir kann að koma í leik. Ef þetta kæmist í framkvæmd, og þjálfurum félagsins og leiðbeinend- uin fyrirmælt, að fara eftir þessu „pró- grammi“, og þeir sem það semja fylg- ist með, er ugglaust að þeir piltar, sem annars geta lært þetta, hafa fengið mikla kunnáttu eftir að liafa farið í gegnum þetta í fimmta flokki, fjórða flokki og þriðja flokki. Ef að þessu yrði horfið, ætti Valur ekki að þurfa að kvíða því að upp í flokk og meistaraflokk kæmu piltar, sem ekki hefðu leikni fyrir þann flokk. Mér féll mjög vel við piltana í Val. Það kom aldrei til neinna átaka við þá, né forráðamenn deildarinnar, og öll samvinna við þá var með miklum ágæt- Sem sagt mér féll vistin vel hjá Val. Að lokum vildi ég segja, að það væri gaman að geta helgað sig íþróttinni al- veg, en þegar maður verður að vinna tíu tíma á dag og vera svo í þjálfun í nokkra klukkutíma á kvöldi, er erfitt að ná langt. Mér virðist því vera tími til kominn að skólarnir taki leikinn meira upp á sína arma og að liann verði kenndur þar, sérstaklega þegar fer að vora. Þá virðist manni, sem piltunum ætti að vera eins hollt og heppilegt að fara út með leikfimikennara sínum og spretta úr spori í knattspyrnuleik. F. H. „Að reyna sjálfur, og hjálpa sér sjálfur, ætti að vera kjörorð handknattleiksmanna Vals“ Tíðindamaður Valsblaðsins leit rétt sem snöggvast inn á æfingu hjá hand- knattleiksfólki Vals um daginn, og var þar mikið um að vera. I smá hléi, áður en æfingin hjá meistaraflokki karla byrjaði, hitti hann þjálfara flokksins Birgi Björnsson. Handknattleiksdeildin var svo Ijón- heppin að fá Birgi til sín, einmitt þeg- ar allar dyr með þjálfara virtust lok- aðar. — segir Birgir Björnsson Birgi þarf ekki að kynna fyrir Vals- mönnum, eða öðrum áhugamönnum um handknattleik, til þess hefur hann kom- ið það mikið við sögu handknattleiks- ins, fyrst sem snjall leikmaður í liði FH og fyrirliði þar, eldmaðurinn og áhugamaðurinn um allt er varðar handknattleik. Ennfremur má benda á þátt hans í landsleikjum Islands und-

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.