Valsblaðið - 24.12.1962, Blaðsíða 12
10
VALSBLAÐIÐ
Gœti hann ekki hugsað á þessa lund ungi Valsmaðurinn til hœgri við Egil markmann, og mun
hinum ekki svipað innanhrjósts?
„Mig hlœgir að verða stór og st.anda í marki
og stórskotin taka.
Verða* ekki lakari en Egill í hörku harki.
og með hyggindum. vaka“.
Einnig tók flokkurinn þátt í íslands-
móti utanhúss, og varð þar nr. 3 í sín-
um riðli. Þessi flokkur fór svo einnig á
þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og keppti
þar tvo leiki við Þór og sigraði, en
gerði jafntefli við iBV.
Fulltrúi Vals í Handknattleiksráði
var Óskar Einarsson á liðnu starfsári,
en Bergur Guðnason verður þar þetta
starfsár.
Á árinu voru haldnir 9 skemmtifund-
ir fyrir félagsmenn og voru margir
þeirra fjölsóttir. Á fundi þessa komu
oft eldri félagar og töluðu og lásu upp.
Með ársskýrslunni er skrá yfir alla
leiki flokkanna og úrslit. Einnig er þar
skrá yfir þá sem leikið hafa í flokkun-
um og hvað marga leiki hver.
LOKAORÐ
Ekki verður svo lokið við skýrslu
þessa, að ekki verði öllum þeim kon-
um og körlum, sem á einn eða annan
hátt hafa stutt að framgangi handknatt-
Yfirlit yfir árangur handknattleiksflokka
VALS 1961 - 1962.
Mót U L U J T Mörk %
Meistaraflokkur karla .... ... 4 0 16 5 2 9 213:276 37,5
Annar flokkur karla A . .. .. . 2 0 8 6 0 2 81: 68 75,0
Annar flokkur karla B . .. ... 1 0 3 2 0 1 16: 15 66,7
Þriðji flokkur karla A . .. ... 2 1 9 8 0 1 106: 71 88,9
Þriðji flokkur karla B . .. ... 2 0 10 5 2 3 80: 56 60,0
Meistaraflokkur kvenna . . . ... 3 2 13 9 3 1 110: 75 80,8
Annar flokkur kvenna .. . . ... 3 0 13 4 1 8 58: 65 34,6
17 3 72 39 8 25 664:626 59,0
ÞÓRARINN EYÞÓRSSON
KOSINN FORMAÐUR
Formaður deildarinnar, Ingi Eyvinds,
flutti skýrslu stjórnarinnar.
Þótti skýrslan bera með sér, að yfir-
leitt hafi vel gengið á árinu, nema hvað
meistaraflokkur karla féll niður í aðra
deild. Á fundinum kom það greinilega
fram, að engu þyrfti að kvíða, því yngri
flokkar félagsins væru mjög efnilegir
og sigursælir.
Nokkrar umræður urðu um félags-
mál, t. d. var rætt um byggingu og
möguleika á úti-handknattleiksvelli úr
malbiki eins og farið væri að gera er-
lendis, t. d. á Norðurlöndum og víðar.
Þá var rætt um utanferð flokka á næsta
ári, og mælt með því að unnið verði að
því eftir sem hyggilegt er og miði að
þroska leiksins innan félagsins.
Ýmislegt fleira var rætt er varðar
starfsemi deildarinnar í framtíðinni.
STJÓRNARKJÖR
Nýr formaður var kjörinn fyrir deild-
ina, Þórarinn Eyþórsson, og var hann
einróma kjörinn með lófataki.
Með honum voru kjörnir í stjórn:
Jón Kristjánsson, Valgeir Ársælsson,
Róbert Jónsson og Sigurður Guðjóns-
son. Yarastjórn: Hermann Gunnars-
son, Sigrún Geirsdóttir og Guðbjörg
Árnadóttir.
Þórður Þorkelsson lét af stjómar-
störfum eftir að hafa um 20 ára skeið
verið einn traustasti forystumaður hand-
knattleiksins í Val. Baðst hann eindreg-
ið undan endurkosningu, en handknatt-
leiksmenn í Val munu lifa í voninni
að hann komi aftur til starfa. Elju-
menn, eins og Þórður, eru ekki á liverju
strái.
Fundarstjóri var Valgeir Ársælsson,
en fundarritari Guðmundur Ingvason.
F. H.
leiksins í Val, þökkuð störf þeirra á
liðnu ári. En góðir félagar, ef Valur á
að komast á tindinn á ný, verða allir
að leggjast á árina og róa. Mörg óleyst
vandamál bíða, og mikið verkefni fyrir
hið unga og gjörvulega fólk, sem skip-
ar sér undir merki Vals.
Aðalfundur handknattleiksd.