Valsblaðið - 24.12.1962, Blaðsíða 29
VALSBLAÐIÐ
27
ÞaS er „litiS upp“ til þessara f.ulltrúa Vals, sem eru á leiS til kóngsins Kaupmannahafnar.
Borgarstjórinn tók þar á móti okkur
og stjórnaði borðhaldinu. Þarna var
sérstaklega frjálslegt og glatt á hjalla,
og skemmtum við okkur prýðilega.
Laugardaginn 21. júlí var okkur boð-
ið á veðreiðar. Þær voru talsvert til-
þrifameiri en hjá okkar ágæta „Fák“
við Elliðaárnar, og höfðum við rnikla
ánægju af, þrátt fyrir dálitla rigningu.
Um kvöldið fóru flestir út á Dyrehavs-
bakken og skemmtu sér stórkostlega,
ekki sízt þeir sem héldu sig í „Twist-
salnum“.
Daginn eftir lékum við fyrsta leik
okkar við B-lið Lyngby. Utlitið var ekki
glæsilegt í liálfleik, því að þá höfðu
Danirnir gert tvö mörk, en við ekkert.
Sem betur fór, þá snerust hlutirnir við
í seinni liálfleik og tókst okkur þá að
skora 5 mörk, og lauk leiknum með
sigri okkar 5:2.
Mánudaginn 23. júlí skoðuðum við
hið fræga sjávardýrasafn, Danmarks
Akvarium, og var það bæði fróðlegt og
skemmtilegt. Ákveðið hafði verið að
fara í sólbað á ströndinni við Bellevue,
en heljarmikil rigning kom í veg fyrir
það.
Næsta morgun skoðuðum við Carls-
berg-verksmiðjurnar og höfðum þá leið-
sögumann, sem sagðist hafa verið dáti
á „Fyllu“, og komið til Islands fyrir
ca. 50 árum. Hann talaði stanzlaust á
meðan liann sýndi okkur herlegheitin,
og þagnaði ekki fyrr en í veitingasaln-
pm, þar sem gestir fá að smakka á fram-
leiðslunni. Eftir liádegi fórum við í
dýragarðinn og dvöldum þar lengi dags,
enda margt óvenjulegt og skemmtilegt,
sem ber þar fyrir Islendingsaugu.
Á miðvikudagskvöld 25. júlí lékum
við svo annan leik okkar gegn AB Bags-
værd. Var ekki laust við, að glímu-
skjálfti væri í okkar mönnum fyrir
þann leik, enda höfðu þeir tapað í
Reykjavík fyrir þessu liði ári áður. En
þarna tókst að liefna fyrri ófara, því að
okkar menn spiluðu mjög góðan leik,
sennilega sinn bezta í ferðinni, og sigr-
uðu með 3:0.
Á föstudagskvöldið 27. júlí fórum við
í Cirkus Scliumann, og var það mikil
og fjölbreytt skemmtun. Með okkur
komu félagar okkar og gestgjafar frá
Lyngby, og gerði það kvöldið enn eftir-
minnilegra.
Daginn eftir lékum við svo þriðja
leikinn í ferðinni, og nú við Danmerk-
urmeistarana í 2. flokki A-lið Lyngby.
Framan af var leikurinn jafn, en svo
fór að lokum, að Danirnir náðu yfir-
liöndinni og sigruðu með 7:3. Nokkur
álirif liafði það á lið okkar, að leikur-
inn fór fram í miklum liita, og léku
sumir liðsmenn okkar langt neðan við
venjulega getu.
Sunnudaginn 29. júlí fórum við í
Kaupmannahafnarferð og skoðuðum m.
a. Kristjánsborgarliöll og Kastrup-flug-
völl. Um kvöldið var okkur boðið til
veizlu í Tivoli, og þar á eftir skemmt-
um við okkur í hinum ýmsu skemmti-
stöðum. Á miðnætti horfðum við svoi á
flugeldasýninguna, sem var mjög glæsi-
leg.
Næsta dag spiluðum við fjórða leik-
inn, og var liann við Hvidovre. Okkur
liafði verið sagt, að þetta lið væri mjög
sterkt og að við myndum áreiðanlega
bíða lægri lilut. En það fór á annan
veg, enn náðu qkkar menn sér vel á
strik og sigruðu með 3:0.
Þriðjudaginn 31. júlí höfðum við al-
veg frjálsan til okkar umráða. Var þá
ákveðið að skreppa yfir til Svíþjóðar.
Fórum við með ferju yfir til Lands-
krona og dvöldum þar í nokkrar
klukkustundir. Þeir, sem enn áttu eitt-
livað eftir af gjaldeyri, keyptu þar ým-
islegt, en slíkir inenn voru nú orðnir
fágætir í hópnum.
Daginn eftir lékum við síðasta leik
okkar við Virum Boldklub. Gekk okk-
ur ágætlega og sigruðum við með 4:2.
Fimmtudaginn 2. ágúst fórum við í
langferðabíl um Norður-Sjáland. 1
þeirri ferð skoðuðum við m. a. Kron-
borgarhöll. En þó liallirnar séu glæsi-
legar, þá hreifst maður ekki síður af
liinu fagra landslagi og liinum litríka
gróðri, sem er á þessum slóðum. Hr. E.
Yde, sem lengi liefur verið form. S.B.U.,
tók þátt í þessari ferð. Hann er mikill
Islandsvinur, og á marga vini meðal
ehlri félaga í Val. Hann bað okkur að
skila kveðjum til þessara vina sinna,
og er það liér með gert.
Síðasta kvöldið, sem við dvöldum í
Lyngby, var lialdið kveðjuhóf fyrir okk-
ur í fundarsölum íþróttahússins. Voru
þar margir saman komnir, bæði gest-
gjafar okkar og félagar, og ýmsir for-
ystumenn íþróttamála. Þarna var skipzt
á gjöfum og margar ræður fluttar.
Minnistætt verður okkur öllum, þegar
sýnd var kvikmynd, sem Danirnir liöfðu
tekið í Islandsferð sinni, og hve mikla
hrifningu hún vakti. Var augljóst, að
samstarf félaganna Lyngby Boldklub og
Vals liafði orðið báðum aðilum til
gagns og gleði, og minntust margir á,
að æskilegt væri, að þetta samstarf
liéldi áfram á komandi árum.
Á liádegi laugardaginn 4. ágúst
kvöddum við hina dönsku vini okkar,
og stigum aftur um borð í Gullfoss.
Heimferðin gekk að óskum, þótt veðrið
liefði stundum inátt vera betra.
Til Reykjavíkur komum við snemma
að morgni 9. ágúst. Þá var þessari við-
burðaríku ferð lokið, sem okkur öllum
hlýtur að verða óglevmanleg.