Valsblaðið - 24.12.1962, Blaðsíða 26

Valsblaðið - 24.12.1962, Blaðsíða 26
24 VALSBLAÐIÐ ALFREDO DI STEFANO Um fáa knattspymumenn hefur verið meira rætt síðustu 10 árin, heldur en Alfredo di Stefano, en hann hefur leik- ið með spánska liðinu Real Madrid síð- an 1953, og hefur orðið þar að þjóð- hetju og nokkurskonar dýrlingi. Alfredo di Stefano er fæddur í River Plate í Argentínu í janúar 1925. Hann var orðinn 16 ára, þegar hon- um var veitt athygli fyrst, og litlu síðar var hann orðinn „stjarna“ á knatt- spyrnuhimninum. Fyrst var hann í fé- laginu River-PIate í Buenos Aires, en það félag hefur 66,000 félagsmenn. Um þetta leyti varð til í Kolumbía knattspyrnukeppni, sem kölluð var ,,villta“ deildin, þar sem um var að ræða nokkurskonar knattspymu-sirkus, sem hafði verið stofnað utan við lands- sambandið, og safnaði að sér stómm hópi knattspymusnillinga, víðsvegar að úr heiminum. Auðvitað var Stefano einn þeirra, enda var þeim boðið gífur- legt kaup. Þar varð di Stefano snilling- ur snillinganna. Þrátt fyrir allar þær milljónir, sem þar ultu (félagið, sem hann var í var kallað ,,Miljonaris“!), fór samt svo, að þessi ,,villta“ deild varð gjaldþrota. Þá er það sem Real Madrid kaupir hann. Það merkilega skeður, að annað spánskt félag vill einnig fá hann, og greiðir fyrir hann hærri upphæð en Real Madrid hafði gert, það er River-Plate, sem selur í bæði skiptin, því það hafði aðeins lán- að Stefano til Kolumbía, en ekki selt. Þetta leit ekki vel út. Stefano var orðinn félagi í tveim félögum í sama landi! Fjöldi skeyta barst til FIFA víðs vegar að af Spáni, og lausn varð að fást á máli þessu. SALOMONSDÓMUR Eftir stuttar umræður komust menn að þeirri niðurstöðu, sem minnir á Salomonsdóminn fræga: Di Stefano skal skipt á milli félaganna tveggja! Ekki skyldi það gert með exi, heldur átti það að gerast á þann hátt, að þau skyldu hafa hann sitt árið hvort! Skyldi dregið um hann í fyrsta sinn, og fór það svo að Barcelona vann hlutkestið, og skyldi hann leika með því félagi fyrsta árið. Þegar fyrsta árið var liðið fannst forráðamönnum Barcelona að þessi fyrrverandi Argentíunmaður væri nú, þrátt fyrir allt, ekki neitt sérstakt! Að minnsta kosti var það látið svo heita, en talið er, að á þeim tíma hafi félagið verið í fjárhagskröggum, og svo mikið var víst, að Real greiddi nú fyrir hann nokkru hærri upphæð en það gerði í fyrstu. Er sagt, að framkvæmda- stjóri Real, Senor Barnabeau, sem skap- að hefur Real, eins og það er í dag, hafi greitt þá upphæð með mikilli á- nægju. (Um 3 millj. ísl. króna, en í fyrra sinnið um 2,5 millj.!). Barnabeau sagði kunningja sínum síðar, að þrátt fyrir það, að hann hafi kostað Real alltað 6 millj. ísl. króna, að þá hafi þetta verið reifarakaup. MEIÐIST SJALDAN Það er talið margt, sem einkennir di Stefano, sem knattspyrnumann, og þó fyrst og fremst leikni hans með knött- inn og næmur skilningur hans á því hvað flokksleikur er. Þó mun það þykja einna merkilegast við Stefano, hvað honum tekst að forðast meiðsli í leikj- um. Þegar hann hafði leikið 100 leiki með Real, eða rúmlega það, hafði hann aldrei þurft að boða forföll vegna meiðsla, og þykir það einsdæmi. Því er ennfremur lialdið fram, að frá því að hann byrjaði að leika með River- Plate, liafi hann ekki þurft að boða forföll oftar en 10 sinnum! Mun enginn leikmaður, sem leikið hefur svo lengi í hinni hörðu atvinnumennsku, haft svo fá forföll, og má nærri geta livaða fjár- hagsþýðingu það liefur fyrir það lið, sem hefur slíkum manni á að skipa. Enn eitt kemur til, sem gerir Stefano svo sérstæðan, en það er hve marka- sæll hann er. Til þessa hefur hann skor- að 424 mörk fyrir Real, og um daginn lék hann 500. leik sinn fyrir það, og var þá mikið um dýrðir hjá félaginu. 1 þeim leik skoraði hann bæði mörk- in sem Real gerði. Var þessi afmælis- leikur gegn Barcelona, félaginu, sem hann byrjaði hjá og þótti ekki mikið til hans koma! MARGT LlKT OG HJÁ MATTHEWS Sagt er að margt sé líkt með þeim di Stefano og Stanley Matthews hinum brezka. Báðir segja, að knattspyma skuli iðkuð með fótunum (Matthews skallar mjög sjaldan). Það kom einu Di Stp.jano. sinni fyrir að útherji sendi knött fyrir markið. Til mikillar furðu fyrir leik- menn og áhorfendur þaut di Stefano fram og skallaði. Að vísu fór knöttur- inn hátt yfir, en aðeins það að hann skyldi skalla var stór viðburður! Þegar Stefano var síðar spurður hvers vegna hann notaði ekki höfuðið til að skalla með, svaraði hann samstundis, að hann notaði það aðeins til að setja hattinn á það!

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.