Valsblaðið - 24.12.1962, Side 11
VALSBLAÐIÐ
9
1 Islandsmótinu skeðu þau sorglegu
tíSindi að meistarflokkur féll niður í
aðra deild eftir aukaleik við KR, sem
við töpuðum 14—19. I Islandsmótinu
skoraði flokkurinn 94 mörk gegn 144
og varð nr. 6.
Annar flokkur karla:
Reykjavíkurmótinu var skipt í riðla
og lék annar flokkur í B-riðli. Valur
og Víkingur voru jafnir að stigum og
mörkum að leikjum loknum og þurfti
því að leika aukaleik, sem svo Víking-
ur vann með 6:3.
1 Islandsmótinu lék svo annar flokk-
ur í B-riðli og vann þann riðil glæsi-
lega.
1 úrslitaleik milli sigurvegaranna í A-
og B-riðli tapaði svo Valur naumlega
fyrir Víking með 10:9.
Annar flokkur B:
Valur tók þátt í Reykjavíkurmótinu
í þessum flokki. 1 Islandsmótinu lenti
flokkurinn í A-riðli og varð nr. tvö og
skoraði 16 mörk gegn 15.
ÞriSji flokkur A:
1 Reykjavíkurmótinu keppti flokkur-
inn í A-riðli og varð nr. tvö, skoraði 21
mark gegn 20, hafði óhagstæðara marka-
hlutfall en KR og lenti því í öðru sæti.
1 Islandsmótinu var Valur nú í B-
riðli og vann þann riðil glæsilega, hlaut
10 stig, vann alla leiki sína. Þegar svo
úrslitaleikurinn var leikinn milli A- og
B-riðils sigraði Valur KR með 10 mörk-
um gegn 9, og fékk Valur þar fyrstu
meistara sína í þessu móti.
íslandsmeistarar III. jlokks Vals 1962. Fremri röð frá vinstri: Gunnsteinn Skúlason, Finnbogi
Pálsson, Jón Carlsson. Aftari röS frá vinstri. Birgir HarSarson, Bergsveinn Alfonsson, Ágúst
Ögmundsson, Hermann Gunnarsson.
ÞriSji flokkur B:
Reykjavíkurmótið í þriðja flokki B
fór fram í einum riðli og varð Valur
þar í fimmta sæti, skoraði 35 mörk gegn
36, og fékk 3 stig. 1 íslandsmótinu lék
flokkurinn í A-riðli og vann þann riðil
á hagstæðari markatölu við Fram. 1 úr-
slitaleik léku þeir svo við KR og töp-
uðu með 7 mörkum gegn 8 eftir jafnan
og spennandi leik.
Á s.l. sumri fór fram svokallað sumar-
mót í þriðja flokki karla samhliða Is-
landsmótinu í karlaflokki utanhúss.
Sigruðu Valspiltarnir þar í B-riðli. —
Þegar til úrslitanna kom á milli sigur-
vegaranna úr riðlunum, mættu Ármenn-
ingar ekki til leiks.
FjórSi flokkur:
Engin opinber mót voru lialdin í þess-
um flokki, en jólamót var haldið að
HKðarenda, með þátttöku frá Reykja-
víkurfélögunum öllum og FH og Hauk-
um úr Hafnarfirði. Var þetta útsláttar-
keppni og tapaði Valur fyrir lR 8:5.
Fram sigraði í móti þessu.
Mcistaraflokkur kvenna:
1 Reykjavíkurmóti kvenna náðu Vals-
stúlkurnar góðum árangri, hlutu 7 stig
og urðu nr. 2.
1 afmælismóti HKRR, sem var út-
sláttarkeppni, sigraði Valur, vann Frarn
í úrslitaleik 6:5.
1 Islandsmótinu sýndu Valsstúlkurn-
ar þann baráttuvilja, sem leiddi til þess
að þær náðu því langþráða takmarki
að hljóta sæmdarheitið Islandsmeistar-
ar 1962, öllum sönmirn Valsmönnum
og konum til mikillar ánægju.
Annar flokkur kvenna:
Annar flokkur kvenna tók þátt í
Reykjavíkurmótinu og var nr. 5, hlaut
2 stig, gerði 26 mörk gegn 21.
1 Islandsmótinu tók flokkurinn einn-
ig þátt og keppti í B-riðli og varð þar
nr. 4 og hlaut 2 stig.