Valsblaðið - 24.12.1962, Blaðsíða 22

Valsblaðið - 24.12.1962, Blaðsíða 22
20 VALSBLAÐIÐ Axel Tulinius, fyrsti forseti ÍSf. Séra FriSrik FriSriksson hafSi miklar mætur á Tuleniusi, og hann á FriSrik, enda voru þeir félagar í „Skydeforeningen“ í Kaupmannahöfn og æ síSan meSan báSir lifSu. Á þessu ári átti íþróttasamband Is- lands hálfrar aldar afmæli. Stofndag- ur þess er 28. janúar 1912. Forgöngu- maður að stofnun sambandsins var Sig- urjón Pétursson, þáverandi glímukóng- ur Islands, síðar stórvirkur iðnrekandi. Sigurjón var einn af höfuðskörungum íþróttahreyfingarinnar og víðkunnur íþróttagarpur. Stofnfundur ISl var háður í Báru- húsinu (síðar íþróttahús KR), sátu hann fulltrúar 7 íþróttafélaga, öll úr Reykjavík, en auk þess 5 önnur félög, þar af tvö úr Reykjavík og þrjú frá Akureyri, sem tilkynntu þátttöku sína, og teljast þau til stofnfélaganna, svo þau urðu alls 12 félögin, sem stofn- uðu ISl. Fmidarstjóri var Axel Tulinius sýslu- maður, en hann var síðan kjörinn fyrsti forseti samhandsins. Auk annarra þjóð- ktmnra manna, sem þama koma mjög við sögu, var Ólafur Bjömsson ritstjóri Isafoldar, Guðmundur Björnson land- læknir, Halldór Hansen læknir, Jón Ásbjörnsson hæstaréttarlögm., Tryggvi Þórhallsson síðar forsætisráðherra og margir fleiri. Má fullyrða að þarna var valinn maður í hverju rúmi. ISI 50 ára Auk Axels Tulinius forseta, skipuðu þessir fyrstu stjórnina: dr. Björn Björnsson frá Viðfirði (sá sem ritaði hina gagnmerku bók, Iþróttir forn- manna, sem hann tileinkaði æsku Is- lands), Guðmundur Björnson land- læknir, Björn Jakohsson íþróttakenn- ari og HaRdór Hansen læknir. Axel Tulinius var forseti sambands- ins frá 1912 til 1925, en þá tók Benedikt G. Waage við, en hann var kosinn í stjórnina 1915, og gegndi því mikils- verða starfi til ársins 1962, en þá tók við Gísli Halldórsson, og auk hans em nú í stjórninni: Guðjón Einarsson, Axel Jónsson, Sveinn Björnsson og Gunn- laugur Briem. Það er eftirtektarverk, að í hálfa öld gegndu aðeins tveir menn embætti for- setans, sýnir það betur en annað, hversu heppnin hefur verið með í vali for- ystumanna sambandsins, og það átt sinn drjúga og góða þátt í að efla það og treysta og forða því frá óþarfa flokka- dráttum, sem auðveldlega hefðu getað skapazt, því til óbætanlegs tjóns, með- an það var að mótast og festa rætur. Með stofnun ISÍ er loks komið það afl, sem fært var að fylkja hinum dreifðu íþróttafélögum til sameigin- legra átaka, á sviði íþrótta, líkamsrækt- ar og aukinnar almennrar þjóðmenn- ingar. Þess vegna er 28. janúar einn af heilladögum í sögu þjóðar vorrar. Afmælisins var minnzt með miklum glæsibrag. Út kom veglegt afmælisrit, efnt til „sögusýningar“, þar sem sýndur var einskonar þverskurður af íþrótta- starfinu hér á landi, aRt frá landnáms- tíð til vorra daga. Þá var mikil veizla gjörð að Hótel Borg, þar sem saman var komið flest stórmenni þjóðarinnar með forseta lýð- veldisins í broddi fylkingar, en hann er verndari ISl. EB. Benedikf G. Waage kjörinn heiöursforseti ■þröttahreyfingarinnar Á síðasta ársþingi Iþróttasambands Islands baðst Benedikt G. Waage und- an endurkosningu, sem forseti ISl, en hann hefur verið forseti ISl í 36 ár og átt sæti í stjórn sambandsins í 47 ár, eða frá árinu 1915. Munu fáir íþróttaleiðtogar hafa, af annarri eins elju og áhuga, unnið svo lengi að íþróttamálum sem Benedikt hefur gert. Mun óhætt að fullyrða, að enginn Islendingur hafi staðið svo lengi í fremstu víglínu og hann. Benedikt hefur imnið íþróttimiun af heilum hug, og má segja að hann hafi fórnað þeim ævistarfi sínu. Á yngri ár- um var hann mjög alhliða íþróttamað- ur og þó mun sund hafa verið sú grein, sem hann mat mest. Hann var óþreyt- andi á hvatningum sínum til ungs fólks, að iðka íþróttir, fara í fjallgöngur, og nota „sjóinn og sólskinið“, eins og hann segir svo oft. Sem verðugt þakklæti fyrir störf hans fyrir íþróttahreyfinguna var hann einróma kjörinn heiðursforseti Iþrótta- sambands á þinginu, sá fyrsti í röðinni. Fyrir hönd allra Valsmanna er Bene- dikt þakkað starf hans í öll þessi ár. F. H.

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.