Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1913, Side 81
ALMANAK 1913.
49
ekki enn búinn að læra þá meginreglu Ameríkumanna að láta
peningana ráða göngu sinni og stefnu. Stefán er allra manna
hjálpsamastur, ekki sízt við hina minni máttar, og ekki ósjald-
an að hann veiti lið sitt þótt í bága komi við hans eigin
sakir. En um liðsemd hans má hið sama segja, sem Guð-
mundur hinn ríki sagði um Skarphéðinn: “heldur vildi eg
hafa hans fylgi en tíu annara.” Stefán Einarsson er skýr
maður og víðlesinn og fróður um margt. Hann ann íslenzk-
um bókmentum af alhug, einkum skáldskap og skilur hann vel.
Hann er vel máli farinn og lætur alloft mjög til sín taka um
velferðarmál bygðarinnar. Fylgir hann fast málum þeim
sem hann beitir sér fyrir; mæti hann mótspyrnu á fundum,
verður hann oft heitari en sumum þykir hæfilegt. Frömuður
er Stefán bindindisfélagsins í bygðinni, þess félagsskapar,
sem mesta og bezta ávexti hefir borið og er hið heillaríkasta
félag bygðarinnar. í safnaðarmálum hefir Stefán verið hinn
mesti styrktarmaður alla tíð, lengst af átt sæti i saínaðar-
nefnd, beitt þar kröftum og þekking til að sameina.
HALLGRÍMUR JÓNSSON, Jónssonar frá Ólafsey á
Breiðafirði og síðar á Narfeyri á Skógarströnd. Faðir Jóns
á Narfeyri var Jón í Gvendareyjum, Jónssonar frá Bíldsey á
Breiðafirði. Kona Jóns á Narfeyri, móðir Hallgríms, var
Kristín Tónsdóttir frá Vörðufelli á Skógarströnd: móðir Jóns
á Narfeyri, föður Hallgríms, var Salóme Oddsdóttir frá
Arnarbæli í Dalasýslu. Kona Hallgríms er Þuriður Jóns-
dótlir Jónssonar frá Lauguni í Sælingsdal. Hann kom frá
Hellissandi í Snæfellsnessýslu árið 1905. Hallgrímur Jóns-
son er vænn að álitum, hógvær og greindur maður og vel að
sér í íslenzkum fræðum, sem honum sem mörgum öðrum að
litlu gagni kemur í þessu landi. Hann er söngmaður góður
og hefir fyrstur manna innleitt sönglist hér í bygð. Brátt
eftir komu hans ‘il nýlendunnar keyptu konur safnaðarins
orgel og hefir mátt á messudögum og öðrum samkomum sjá
allstóran hóp hinna fríðustu yngismeyja bygðarinnar skipa
sér í hvirfing umhverfis Hallgrím Jónsson.
SVEINBJÖRN SVEINSSON, Sæbjarnarsonar, bróðir
Jóhanns. Hann misti konu sína á íslandi og býr hér með
dóttur sinni.