Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1913, Side 103
ALMANAK 1913.
71
fæti; mundi hann hafa veriö látinn hlaupa fyrir til njósna á
landnámsöldinni, sem Rafn hinn litli í sögu Finnboga ramrna.
Ekki er hægt að ákveöa meö vissu, nær Jafet kom til Alberta-
nýlendunnar, en þó ætla jeg að þaö hafi verið á árunum 1894
—96; nam hann land viö Burnt Lake og bjó þar um hríö.
Jafet var fjelítill og haföi fullan kepping að framfæra sig og
skylduliö sitt; en svo tók fram úr því fyrir honum, því konu
lians tæmdist arfur eptir Helga bróöur sinn svo nókkru nam,
svo hann haföi þá álitlegan fjárstofn, sem bætti hans. heföi
hann þá ekki brugöið á annaö ráö ; en eigi löngu síöar fjekk
hann þá flugu i höfuöið, aö flytja til Cuba; ekki þótti mönn-
um þessi ráðagerð Jafets hyggilega stofnuö og urðu ýmsir
til aö letja liann, en hann ljet ekki letjast. Sendi hann þá
son sinn—ungling að aldri—áleiðis þangað aö greiða sjer
veg, og komst sá nauðulega um síöir alla leiö. Árið eptir,
1909, seldi Jafet land sitt og lausafje og fór til eyjarinnar
Cuba.
II. FJELAGSSKAPUR OG FRAMFARIR
1890 — 1900.
í öörum kaflanum í söguágripi þessu er sýnt frani á, að
fyrstu tvö árin, 1888—90, var um Iitlar framfarir að ræða í
nýlendunni. Nýbyggjarnir höfðu við ööru aö snúast; þeir
höfðu fullan kepping í baráttunni fyrir lífsnauðsynjum sín-
um; um samtök til fjelagsskapar gat þá ekki verið að ræða;
efni voru smá, og vinnukraftarnir veikir; allir voru einyrkjar
og höfðu því aöeins sínum kröptum til að dreifa. Þeir, sem
gátu, reyndu jvá eptir megni að bæta híbýli sín og auka sem
föng framast leyfðu bústofn sinn. Eigi að síður var mönnum
ljóst, að eigi mátti svo búiö standa. Liðu jjví eigi langir
tímar, áður farið væri aö vinna í þá áttina, aö ráöa bát á
hinum mest umvarðandi almennu Jjörfum. En til þess þurfti
fjelagsskap; þeir fáu landnemar, sem þá vöru komnir, voru
dreifðir um afar-stórt svæöi, og gjöröi Jnað alla samvinnu
torsótta. Það, sem mönnum fannst þá mest um vert, var
vöntun á reglulegum póstflutningum og alþýöuskólum. Þaö
voru allra nauðsynlegustu málefnin, sem ráða þurfti framúr.
i.—PÓSTMAL. .....
Þess er áður getið, aö veitt var pósthús. “Cash City”,
1889, en var lagt niður eptir rúmt ár, af ástæðum, sem áður