Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1913, Side 120
88
ÓLAFUR s. thorgeirsson:
systir Jóns Árnasonar á Víðimýri í SkagafirSi. Egill bjó
síöan lengi á Reykjum og andaSist þar. Egill var merkur
maSur og vel gefiS um flest; hann var þjóðhagasmiSur og
ritaSi fagra rithönd, sem bræSur hans, Jóhann og Jóhannes,
sem lengi var barnakennari á Akureyri í EyjafirSi. Arnór
sonur hans var myndasmiSur og þótti mjög bera af öSrum í
þeirri iSn, og aS öllu var hann vel gefinn maSur, sem Egill
faSir hans. Arnór dó ungur og varS harmdauSi öllum sem
þekktu hann. Hinir bræSurnir fóru vestur um haf; KonráS
fór til Bandaríkjanna og dó þar, en Halldór Jóhannes er aust-
ur í Sask., Canada. Ásmundur og Kristín eiga fjögur börn
á lífi: Sigrún, Vilhjálmur, Laufey Jóhanna og Arnór Ed-.
ward. Ásmundur flutti frá Reykjum í Reykjahverfi í Þing-
eyjarsýslu, vestur um haf, til Winnipeg og settist þar aS.
Asmundur var timbursmiSur; hafSi lært og stundaS þá iSn á
íslandi. Neytti hann nú þess eptir aS hann kom til Winni-
peg og tók aS vinna aS smíSum. Vann Ásmundur um mörg
ár aS húsabyggingum i Winnipeg, mest samnings-vinnu —
Contract. Frá Winnipeg flutti Ásmundur til íslenzku byggS-
arinnar í Argyle, Man., og dvaldi þar þrjú ár. Frá Argyle
flutti Ásmundur vestur til íslenzku byggSarinnar í Alberta
áriS 1900.’ Ásmundur nam þá land í tungunni vestur frá
Kristni Kristinssyni, sama land og Jósef Hólm hafSi áSur
byggt á. Ásmundur bjó þar um næstu ár. VoriS 1907 hætti
hann búskap og seldi þá lönd og lausafje; fór hann þá norS-
ur til Edmonton og var þar um sinn. ÞaSan fór Ásmundur
vestur á Kyrrahafsströnd, en leizt þar ekki vel og hvarf
austur um aptur til All irta sama áriS. Settist hann þá aS í
Markerville og byggS óf kjötséíubúS, um haustiS 1907;
keypti hann þá bæjarl ,_;1 j byggSi á því og hefir búiS þar
síSan. VoriS 1908 tókst hann á hendur aS flytja póstinn
mijli Innisfail og Markerville, og hafSi þá sýslan hin næstu
ár. Eptir þaS keypti Ásmundur búland skammt austur frá
Markerville. MikiS hefir Ásmundur starfaS af húsabygg-
ingum síSan hann kom til Alberta og hefir jafnan þótt leysa
þaS vel af hendi. Ásmundur hefir tekiS mikinn þátt í safn-
aSarmálum Alberta-safnaSar nú seinni árin. Hann er dugn-
aSar- og framkvæmdamaSur, en vanheilsa hans og fjölskyld-
unnar hefir aS sjálfsögSu stórum hnekkt hag hans; hefSi ei
svo veriS, myndi hann vera orSinn sterkefnaSur; mun þó o-