Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1936, Qupperneq 21
2i
of the Woods hveitimölunarfélagiÖ og hjá Jdví hefir hanii
unnið nú í fjörutíu ár. Arið 1890, 31. okt. gekk Hafsteinn
að eiga Ingibjörgu Magnúsdóttir frá Grímsstöðum á
Seltjarnarnesi í Gullbringusýslu, fædd 25. maí 1872.
Hafa þau nú búið hér í Keewatin í 44 ár. Keyptu þau
57 ekrur af landi utanvert við bæinn og hafa nú reist
þar vandað hús með nýtísku sniði og er þar fagurt um
horfs. Með hagsýni og dugnaði hafa þau búið svo í
haginn fyrir efri ár.sín að þau þurfa eigi að kvíða kulda
né kreppu. Þeim hjónum hefir eigi orðið barna auðið,
en alið hafa þau upp þrjú fósturbörn. Tvö þeirra mistu
þau uppkomin, voru þau systurbörn Ingibjargar, það
þriðja, Esther Vilhjálmsdóttir, er gift hérlendum manni
og búa í Winnipeg. Guðrún móðir Hafsteins dvaldi hjá
syni sínum 1 6 síðustu ár æfinnar og svo var og um Þór-
unni, systir Ingibjargar. Til íslands fóru þau Hafsteinn
og Ingibjörg þjóðhátíðarárið I 930 og minnast þess jafn-
an, að þeim tíma hafi verið vel varið og sú för þeim
ógleymanleg. Hafsteinn er skír maður og góður hagyrð-
ingur þó dult með þá gáfu fari. Ingibjörg er greind kona
og stefnuföst. Tillögu góð um hvert það mál, er hún vill
ræða og Ijá fylgi.
JÓN PÁLMASON frá Bæjum á Snæfjallaströnd við
Isafjarðardjúp. Fæddur l.janúar 1864. Foreldrar hans
voru Pálmi Árnason, hreppstjóri í Bæjum og kona hans
Sigríður Jónsdóttir frá Strandseljum í Isafjarðarsýslu. Jón
er giftur Þórunni Ingibjörgu Jónsdóttir Guðmundssonar,
fædd 25. júní 1862 á Kveingrjót í Dalasýslm Móðir
hennar var Salbjörg Jónsdóttir Ögmundssonar. Ólst hún
upp til fólf ára aldurs hjá Sturlaugi Einarssyni í Rauðs-
eyjum á Breiðafirði, eftir það sá hún fyrir sér sjálf. Þau
Jón Pálmason og Þórunn Ingibjörg giftust 18. ág. 1884.
Fluttust til Canada 1887 og dvöldu tvö fyrstu árin í
Winnipeg. Skömmu eftir að þau settust að hér mistu
þau einkabarn sitt, son, er Sigurjón Hjaltalín hét. Tóku
þau þá til fósturs piltbarn, er síðar varð kjöisonur þeirra
og Hannes Jón Harald heitir. Settu þau hann til menta
og nam hann verzlunarfræði, einkum þá grein er laut að
yfirskoðun reikninga (accountancy) og vinnur hann við