Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1936, Blaðsíða 69
71
skyldir þér, eða hvernig þeir væru það. Bg hefi
■minst. á flest þau skyldmenni sem farið hafa tii
Ameríku. Þú kant að vita um eitthvað af' því fólki
og ekki vita um skyldleikann. Það geta líka margir
fengið að vita um sína ætt að einhverju leyti, sem
nefndir eru í blöðunum, ef þeir vilja. En þessir
útúrdúrar hafa gert ættartöluna svo langa, verst
ef þú skyldir svo ekki hafa neitt gaman af því að í
því liggur eiginlega mest verkið. Eg hefði getað
rakið ættina miklu víðar og lengra fram, en það
hefði gert ættartöluna enn lengri og stiklaði eg því
á tiltölulega fáum mönnum. Eg hefði vel getað
rakið hana til miklu fleiri merkra fornmanna, en
eg hefi gert, t. d. til Ingimundar gamla, Helga
magra, Hámundar og 'Geirmundar Heljarskinns.
Ragnars loðbrókar og fleiri fornkonunga. Bjamar
Bunu, hersis í Sogni, Auðar djúpauðga, Víga Glúms,
Rafns Sveinbjarnarsonar á Eyri o. fl., o. fl. En það
hefði orðið svo langt mál, og þú líklega haft lítið
gaman af því.”
Útgefandinn.
Sigríður Bjarnadóttir.
Poreldrar Sigríðar Bjarnadóttur voru Bjarni Jóns-
son og Bóthildur Sveinsdóttir.
Paðir Sigríðar 1. Bjarni Jónsson bjó á Stóra-
bakka í Tungu í Norðurmúlasýslu og á Heyholts-
stöðum. Systkin hans voru: a. Guðmundur, átti
Solveigu Einarsdóttur frá Glúmsstöðum Sigurðs-
sonar. Þeirra börn: Elízabet og Guðrún, kona
Eyjólf's Björnssonar frá Grímsstöðum Gíslasonar;
báðar fóru til Ameríku. b. Jón í HMðarhúsum_
tvíkvæntur, faðir Jóns á Sleðbrjót og Guðmundar í
Húsey, er báðir fóru til Ameríku. c. Ásmundur í
Dagverðargerði, faðir Þórarins, er síðast bjó á