Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1936, Qupperneq 87
Kona Ásmundar á Ormarsstöðum móðir Péturs á
Eyvindará. var 8. Guðrún dóttir 9. Jóns klaustur-
haldara á Skriðuklaustri 10. Björnssonar sýslu-
manns á Bustarfelli (druknaði í Jökulsárósi 1602),
Gunnarssonar sýslumanns á Víðivöllum í Skaga-
firði, Gíslasonar. Móðir Björns sýslumanns var 11.
Guðrún Magnúsdcttir, dóttir 12. Magnúsar prests á
Grenjaðarstað, 13. Jónssonar biskups á Hólum, Ara-
sonar, er hálshöggvinn var 1550.
Kona Sveins í Götu, móðir Bóbhildar var, sem fyr
segir 2. Vilborg Eiríksdóttir, fædd 1803, dáin 1871,
68 ára. Foreldrar hennar voru 3. Eiríkur Eiríksson,
í'æddur um 1775, dáinn 1825 og Margrét Jónsdóttir,
fædd um 1766, dáin 1829. Þau giftust 1796. Þá
gaf Sigríður hálfsystir hans þeim kodda, er hún
hafði búið til. Hafði hún spunnið í verið og ofið
iþað í íslenzka vefstólnum og er það eins og
leður. Á þeim kodda sváfu þau svo alla samverutíð
s'ína, og sdðan Margrét amma mín og mamma þang-
að til hún gií'tist, og foreldrar mínir meðan þau
voru saman, og eftir það mamma mín, þangað til
hún dó 1898, og nú notar Ingigerður dóttir mín
hann. Koddinn hefir því stöðugt verið. notaður í
134 ár og er verið gott enn, en fiðrið er orðið smá-
gert. Efast eg um, að þetta verði sagt um nokkurn
kodda annan á íslandi. Og hver veit, hve lengi
hann kann að endast enn.
Eiríkur og Margrét bjuggu fyrst 1 ár í Húsum, þá
7 ár á Egilsstöðum í Fljótsdal í tvíbýli við Þorstein,
bróður Margrétar, þá 1 ár í Brekkugerði, 2 ár í
Görðum hjá Valþjófsstað. Þá bygði hann upp bæ í
Klausturrana gegnt Eiríksstöðum á Dal. Þar bjó
hann í 4 ár. Þá flutti hann 1811 að Arnaldsstöðum
í Fljótsdal og bjó 'þar 11 ár. Þaðan fór hann að
Víðivöllum ytri og var þar 3 ár. Þá fór hann að
Víðivallagerði fyrir bón Snorra gamla, er þar hafði