Afturelding - 01.04.1981, Side 12

Afturelding - 01.04.1981, Side 12
Jvtf tX npuX.>}| 'ufjiuj)),n ,hi X" iiiu|.iq )v.)ui BJ.IA P|»A)( | IJ.HA |W ii:u 81-'NVf 02 NNiaaasmv Spála gUdlr fjrir fð»u4i( S|UI.BA)|. VIPfOAJI tfK, JnVJii.ujp '• .imih dngUnt: Ef hú harfnatl hjilpar. ^ axlitbar* áralm: Þítia veröur miklö mcrkUár í lifí binu. Hvað segja st IpÉHh m \ yj ^/’ \1 ^ A 7-4T / Fjöldi manna gefur gœtur að stjörnunum. En gœta stjörnurnar að þeim? Ritstjóri stórs fréttablaðs var nauðbeygður til að birta gam/a stjörnuspá dag nokk- urn vegna þess að nýja spáin barst honum ekki tím- anlega. Ekki einn einasti eitt hundrað þúsunda les- enda hans kvartaði. Svo hann hugsaði með sér að hann gœti þá alveg eins sparað sér kostnaðinn af nýjum stjörnuspám og haldið áfram að birta gamlar spár. í þrjá mánuði notaði hann úreltar stjörnuspár. Loksins kvartaði einn lesandinn undan því að stjörnumerkið passaði ekki við mánuðinn. Fyrst mannorð hans — og tekjur — voru nú í veði, sendi hann inn pöntun fyrir nýjum spám. Allt eintóm svik? Vertu ekki of viss. Það er til önnur hlið málsins. Maður nokkur borgaði mikla upphæð til að fá sérstaka stjömuspá gerða fyrir sig, persónulega. Hann hafði í huga að sýna fram á að stjörnuspeki væri ekki annað en hjátrú og svik. Hann varð því mjög undrandi þegar hann komst að raun um að spáin rættist, jafnvel í smáatriðum. Hann hugleiddi málið um stund. Hvemig gat staðið á þessu? Hann trúði ekki einu sinni á gildi stjömuspekinnar. Hann komst að þeirri niðurstöðu að lokum að hann hefði stigið á hættulega grund með því að fikta við dul- spekina. Hann lagði frá sér allt sem tengdi hann við stjömuspeki. En þá, allt í einu, rættust spárnar ekki lengur! Hafði eitthvað komið fyrir stjömumar? Eða sýnir þessi skyndilega breyting að sömu öflin séu að verki í stjörnuspekinni og þau sem eru að verki í andatrúnni, bara undir öðrum nöfnum? Það virðast ekki vera nein skýr mörk milli stjömuspámanna og miðla. Ekki eru allir miðlar stjömuspámenn þó að margir telji stjömuspeki með sem eina af sínum dulspekigáfum. En flestir, ef ekki allir, stjörnuspámenn hafa skyggnigáfur. Stjömu- speki er þannig enn annar leikur sem menn taka þátt í við hinn ósýnilega heim. Og stjömuspekifar- aldurinn fer eins og eldur i sinu yfir landið (Bandaríkin og í það minnsta 40 milljónir manna gutla við stjörnuspáfræði. Atvinnustjörnuspámenn eru 12.000 að tölu og aðrir tugir þúsunda stjömu-

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.