Afturelding - 01.04.1981, Side 21
um kristnu. „Við erum eitt í Andanum“, mun verða
meira en orðin tóm, það mun verða að dýrlegum
raunveruleika.
5. Ekkert á þessari jörð, né í víti, fær stöðvað
þessa vakningu. Endurkoma Krists mun verða há-
markið og niðurlag mestu vakningar sögunnar.
Frá upphafi vega hefur Satan staðið í móti út-
hellingu Andans, en ekki fengið neinu áorkað. í
Topeka árið 1901 og í Los Angeles árið 1906, veltu
fréttamiðlar sér upp úr hæpnum fullyrðingum um
hreyfinguna en það varð einungis til að draga meira
fólk að. Tilraunum „kristilegra“ fréttamiðla til að
sverta hreyfingu Heilags Anda hefur einnig mis-
tekist að stöðva framgang hennar.
Sagan sýnir okkur að hverjir þeir einstaklingar
eða stofnanir sem staðið hafa í gegn raunverulegu
verki Heilags Anda, hafa að lokum staðið and-
spænis andlegum dauða. Hið sama er uppi á ten-
ingnum enn þann dag í dag.
Það kemur sífellt betur í ljós að sá kraftur Hei-
lags Anda sem braust út í Azusa-stræti 1906 og
breiddist þaðan út um heim allan, er sá hinn sami
og valda mun straumhvörfum fyrir Krist og söfnuð
hans við lok 20. aldarinnar.
Nú þegar kristnir Andans menn minnast þess að
75 ár eru liðin frá upphafi vakningarinnar í Azusa-
stræti, hafa þeir menn sem mest komu við sögu
hennar í upphafi, Parham, Seymour og Bartleman,
löngu kvatt þetta líf og farið til fylgdar við Drottin.
Litla trúboðsmiðstöðin var rifin til grunna árið
1929, eftir dauða Seymours. En sá andi vakningar-
mnar sem sveif yfir „vötnum“ Azusa-strætis svífur
nú yfir „vötnum" alls heimsins.
Þýtt Haraldur/Matthías
Logos Journal
Munið
að tilkynna
aðsetursskipti
Legg þú mér
Ijóð á vör
Legg þú mér ljóð á vör,
Lausnarinn Jesús kær,
orð þitt og andans glóð
ó Drottinn kom mér nær.
Tendra minn trúarkveik,
treystu hið veika ker,
ver þú mér vörn og skjól,
vak þú og lif í mér.
Legg þú mér ljóð á vör
lofsöng um kærleik þinn,
anda þíns góðu gjöf
Guðs náð og himininn,
um heimsins leiðarljós
lífsvatn er svölun ljær,
dýrð Guðs um eilíf ár,
uppsprettu er hjartað þvær.
Legg þú mér ljóð á vör.
Lýsi það villtri sál,
öllum það vísi veg,
veki þeim bænamál,
að þeir svo öðlist frið
upphefji þína mynd,
finni í faðmi þér
frelsi og lausn frá synd.
Jóhann Sigurðsson