Afturelding - 01.04.1981, Side 19

Afturelding - 01.04.1981, Side 19
Bcrg og Gunnar Vingren; og til slavnesku þjóðanna í gegnum Ivan Varonaeff, rússneskan Baptista frá New York borg. Seint á árinu 1906 höfðu meira að segja borist þær fregnir til Azusa-strætis að hvíta- sunnuboðskapurinn hafði náð til Indlands, Evrópu, Afríku, og jafnvel Jerúsalemborgar. Vöxtur þeirrar hreyfingar sem á uppruna sinn að rekja til Azusa-strætis, sést e.t.v. best á hinum gífurlega öra vexti á „Söfnuðum Guðs“, hvíta- sunnusöfnuði sem settur var á laggirnar árið 1914 í Hot Springs, Arkansas. Við stofnun taldi söfnuður- inn um 10.000 mann, en árið 1980 var fjöldi með- lima víðs vegar um heiminn orðinn rúmar 10.000.000 (10 milljónir). Er það helmingi hærri meðlimafjöldi en í alheims Mormónakirkjunni. Svipaðan vöxt má einnig griena í Chile, þar sem 2 af 11 milljónum íbúa landsins eru hvítasunnumenn og í Brasilíu þar sem áætlað er að árið 2000 verði um 35 milljónir íbúa landsins hvítasunnumenn. Sömu öflin eru að starfi í Kóreu, Filippseyjum og Indó- nesíu. Náðargjafahreyfingunni óx einnig fiskur um hrygg í hinum hefðbundnu söfnuðum. Árið 1979 gaf Gallup-skoðanakönnun til kynna að 19% af íbúum Bandaríkjanna (um 29 milljónir manna, 18 ára og eldri) töldu sig vera hvítasunnumenn eða kristna menn er tryðu á náðargjafirnar. Gpp úr 1960 óx „hvítasunnukenningunni“ mjög fylgi, fyrst hjá meðlimum Biskupakirkjunnar, en síðan í næstum hverri kirkjudeild í Bandaríkjunum og einnig í þjóðkirkjum víðs vegar um heiminn. Ef Gallup-skoðanakönnunin er á rökum reist, telja 1 af hverjum 5 Baptistum, Lúterstrúarmönnum Meþódistum og Hreintrúarmönnum sig vera fylgj- endur náðargjafa. Árið 1967 hafði náðargjafahreyfingin náð til hinnar rómversk-kaþólsku Ameríku með slíkunr kynngikrafti að hinn kristni heimur stóð agndofa. Samkvæmt nýlegum rannsóknum og könnunum hefur náðargjafahreyfingin haft áhrif á um 10 mill- jónir amerískra Kaþólikka. Árið 1980 lýstu tveir páfar blessun sinni yfir náðargjafavakninguna á nieðal hinna kaþólsku, sem þá hafði náð til Kaþólikka 1 120 þjóðlöndum. Þar eð apríl síðastliðinn, voru liðin 75 ár frá upphafi vakningarinnar í Azusa-stræti finnst mér í senn viðeigandi og velsæmandi að gefa gaum að mikilvægi þessa sögulega atviks fyrir nútíð og framtíð. Á þessu demants-brúðkaupsafmæli Azusa-strætis vildi ég bæta eftirfarandi hugleiðing- um við: 1. Á síðustu tímum mun einungis verða ein út- helling Heilags Anda. Heilagur Andi vargefinn söfnuðinum á stofndegi hans, á hvítusunnudag. Allt frá þeim degi hafa blessunardaggir verið að drjúpa í gegnum aldirnar. En við skulum hafa í huga orð Jóels er hann segir að mesta úthelling Andans muni verða á síðustu dög- um þegar Drottinn úthellir af anda sínum yfir allt hold, þ.e. að þær blessunardaggir sem þegar hafa dropið séu engan veginn sambærilegar við það sem koma skal (Jóel 2:23). Á tuttugustu öldinni hefur „Heilags Anda hreyf- ingin“ gengið undir ýmsum nöfnum, eins og t.d. „postulatrú“, hið „siðara regn“, „hvítasunnuhreyf- ingin“, „allt guðspjallið“ og nú nýlega „náðar- gjafahreyfingin“. Án tillits til hinna ýmsu titla, þá er hér um að ræða staðfestingu á því að á síðustu tímum muni Guð úthella af anda sínum yfir allt hold. 2. Þessi úthelling Andans er ekki komin til sök- um verka eins ómissandi manns, heldur eingöngu sökum verks Heilags Anda. Með þessu er ég ekki að segja að Guð hafi ekki notað menn og konur í úthellingu Andans. Margir hafa þar lagt hönd á plóginn og má þar nefna t.d. Parham, Seymour, Mason, Cashvell, E.N. Bell (fyrir „Söfnuðum Guðs“), A.J. Tomlinson (fyrir „Kirkju Guðs“), Aimee Semple McPherson (fyrir „Kirkju Fjórhliða Guðspjallsins“), Oral Roberts, Demos Shakarian, David du Plessis, Dennis Benn- et, Kevin Ranaghan og marga fleiri. En það er enginn ómissandi leiðtogi og á það jafnt við um Lúter, Kalvin, Wesley og alla aðra menn. Það er athyglisvert til þess að vita að enginn hefur verið lengi í eldlínunni. Leiðtogar hafa komið og farið en Heilagur Andi starfar engu að síður á nýj- um svæðum og það ótrúlega reglubundið. I hvert sinn sem menn hafa risið upp og kveðið upp dauðadóma yfir hreyfingunni hefur það einungis „í upphafi vakningarinnar mátti sjá á víö og dreif um trúboðastöðina, hækjur þeirra, sem læknast höfðu fyrir bæn”.

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.