Afturelding - 01.04.1981, Blaðsíða 27

Afturelding - 01.04.1981, Blaðsíða 27
ingum okkar í opna skjöldu, þá gátu áhrifin orðið ægileg. Stundum sendum við menn frá deildum okkar í hæðir og fjöll, til að glöggva okkur á því hvemig línan lá, en hún gat breyst dag frá degi. Lögmálið var að vera var um sig, dag og nótt. Andstæðingar okkar höguðu sér alveg eins. Það var fagur vormorgunn, lína okkar var mjög framarlega og ég var á verði og í leyni. Ég stóð þar með hlaðna K-byssu. Þá heyri ég hljóð i runnunum fyrir framan mig. Ég man bæn mína og loforð um að þurfa ekki að deyða nokkum mann. Allt í einu eru þrír eftirlits-hermenn Rússanna þama. Þeir komu mér í opna skjöldu. Á augnabliki mundu þeir allir detta dauðir niður, ef ég tæki í gikk byssunnar. Guð kom mér sannarlega til hjálpar. í stað þess að deyða þessa menn, hrópaði ég hvellt í skipunartón: „Ruki verx“ eða „Upp með hendumar.“ Það skeði undir eins, þeir köstuðu vopnunum frá sér og réttu upp hendumar allir þrír. Ég skipaði þeim að ganga bak við víglínuna, afhenti þá yfirmönnum mínum, er síðan fluttu þá í herfangabúðir. Ég lofaði Guð fyrir að þessir menn féllu ekki af mínum völdum og þrjár eiginkonur og böm þeirra fengu eiginmenn og feður heim að loknum hildarleik. Nokkrum dögum síðar var deild okkar flutt og staðsett í skógivöxnu fjalllendi. Aðstaða okkar var þar góð til að fylgjast með minnstu hreyfingu. Að- staða andstæðinga okkar var sömuleiðis góð til að fylgjast með hreyfingum okkar. í nokkra daga skeði ekki neitt. Snemma morguns var ljóst að vatnið var á þrotum. Nauðsyn var á að sækja vatn, í lindir fyrir neðan fjallið. Það var mjög hættuleg ferð og farið yfir svæði, þar sem ekki var hægt að fela sig. Innra með mér fannst mér ég eiga, að bjóða mig fram til að sækja vatnið. Stórt ílát var bundið við bak mitt og mér tókst að komast til lindarinnar, án þess að vekja athygli. Ég var rétt að fylla ílátið með svo miklu vatni, sem ég gat mögulega borið þegar stór- skotalið andstæðinga okkar fór af stað. Skutu þeir á búðir okkar uppi í fjallinu. Án þess að hugsa um hættuna flýtti ég mér til búðanna. Komst ég þangað ósærður. Því miður var það ekki svo með félaga mína. Sprengikúla hafði skollið mitt í hermanna- hópinn, sprungið þar og deytt og sært. Tjónið, sárin og dauðinn, þetta var allt hræðilegt. Undir eins tók ég til höndum og lagfærði sár þeirra er mest voru særðir. Rauðakross deild var tilkölluð og komu þeir von bráðar til björgunar og hjálpar. Vegna trúar minnar, þá sagði ég uppörvandi orð til þeirra er við þeim gátu tekið, meðal særðra og deyjandi her- manna. Orðið um Jesú er það eina sem gildir í sárustu neyð og það varð áreiðanlega til frelsunar og hjálpræðis. Liðið fékk nú endumýjaðan mannskap og var fært til, en línan var sú sama. Áður en fyrrgreind örlagarík árás var gerð, þá stóð á vakt trúaður ungur maður. Hann sér allt í einu, hvar stór fugl, orri, kemur fljúgandi frá landi andstæðinganna og yfir til okkar. Fuglinn sest í trjá- toppi og er þar rólegur. Nú var það svo að naumast sást nokkurt dýr eða fugl við víglínuna. Þau flúðu öll sömul frá þessum voða. Ungi bróðir minn i trúnni hugsaði sér að skjóta fuglinn. Hann þurfti þá að skríða nokkum spöl, til að komast í færi. Leiðin var um 40 metrar og bak við stóran stein var komið dauðafæri á fuglinn. Lyfti hann nú byssu sinni og ætlaði að skjóta, en einmitt þá sprakk sprengikúlan í herstöð okkar. Orrinn flaug frelsinu og lífinu feg- inn. Var hann raunverulegur bjargvættur trúbróður míns og vinar. Það er vert umhugsunar, hvort það hafi verið tilviljun að orrinn kom þama einmitt og þá? Eða var einhver sem stjómaði flugi hans? Hvaða rödd var það sem sagði mér að sækja vatnið og leggja mig í augljósa hættu? Að síðustu segi ég frá eftirlitsferð, sem ég var sendur í, við fremstu línu. Við skógarjaðarinn var slétta, með tjömum. Leið mín var mörkuð yfir sléttuna. Þegar ég er á henni miðri og tjöm mér á aðra hönd, þá kemur orrustuflugvél frá andstæð- ingunum þar yfir, skjótandi úr byssum sínum, vítt og breitt, stutt og langt. Ekki var hugsun fyrir mig að komast undan á berangri og ekki við það að kasta mér niður flötum. Eina leiðin var að komast í vatn- ið. Kúlumar umluktu mig á allar hliðar, en í vatnið komst ég. Sökkti ég mig undir yfirborðið eins lengi og ég gat og rétt setti munn og nef upp úr til að anda. Loks fór flugvélin og ég náði til búða okkar hinumegin við sléttuna, blautur og í mikilli geðs- hræringu. Þegar bakpoki minn var af mér tekin, var hann alsettur kúlnagötum. Svo nærri var ég þá dauðanum. Ég er ekki í vafa hver vemdaði mig og leiddi mig í gegnum þetta. Það var Drottinn sem sendi vemdarengil sinn, til að gæta mín á öllum vegum mínum. Um mörg ár hefur framanskrifað legið í þagnar- gildi. Það er svo margt, sem einstaklingurinn á einn með Guði sínum. Nú er þetta opinberað, svo öllum megi verða augljóst er þetta lesa, að vemdarenglar Drottins gæta þeirra er fela sig í hendur „Hinum trúa Skapara.“ Hemmets Van Örebro 5/3 — 1981

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.