Afturelding - 01.04.1982, Blaðsíða 4

Afturelding - 01.04.1982, Blaðsíða 4
Hann kostaði 5 krónurog siðan voru keyptar nauðsynjar fyrir afganginn. Gleðin og þakklætið á litla heimil- inu. sem vantaði svo margt af þvi, sem í dag er talið til nauðsynja, var ólýsanlegt. Það sem var svo áþreif- anlegt þarna var umhyggja Guðs. F.kki vissi Ólöf um þarfir okkar þvi við sögðum aldrei öðrum en Drottni okkar og frelsara frá þeim og hann einn þekkti þær. „Varpið aliri áhyggju yðar upp á Drottin. því að hann ber umhyggju fyrir yður." (1. Pétursbréf, 5:7). Þóritildur Jóhannesdóttir „Guð frelsaði mig og gaf mér eilifan frið“ Sem ung stúlka bað ég Guð um frið í hjartað og hann svaraði þeirri bæn minni. frelsaði mig og gaf mér eilífan frið. Það er stærsta bænasvar- ið. Um þetta leyti vann ég sem starfsstúlka á Kristneshæli i Eyja- firði. Ég kunni vel við mig þar, en vantaði sálarfrið. Hann fékk égsíðan, þegar Guð svaraði bæn minni og frelsaði mig. Þannig liðu árin i friði. Ég hafði beðið Drottin heitt og lengi um skirn i Heilögunt anda og fannst að með henni yrði trúarlif mitt mun auðugra og sú varð lika raunin á. Maðurinn niinn. Ásmundur Eiriksson. sem frelsaðist á undan mér og vitnaði fyrir mér um Drottin, fór utan á Bibliuskóla og komst að raun um að kenningin um Heilagsanda skím var bibliuleg. Líf mitt var mjög auðugt á meðan maðurinn minn lifði. Hann var öðlingur sem bar mig á höndum sér. Hann var andlega auðugur — síauðugur í trúnni. Þegar hann kom að utan, af afloknu námi. hvatti hann okkur sem frelsuð voru til að sækjast eftir Heilagsanda skírninni, því hún væri mjög þýðingarmikil. Við gerð- um það. Guð svaraði bæn minni og það var dásamlegt bænasvar. Óvið- jafnanleg og himnesk gleði gagntók hjarta mitt og allt mitt trúarlíf varð fyllra og auðugra og samfélag mitt við Drottin innilegra og nánara. Fyrstu tvöárin eftiraðég frelsaðist var ég alein með trúna, en Drottinn var mér undursamlega nálægur. Fljótlega fékk ég þó að eiga samfélag við fólk sent hafði orðið fyrir svip- aðri reynslu og ég — sem hafði fundið Drottin og lálið frelsast. Ég met söfnuðinn ákaflega mikils og elska það að vera í söfnuði Guðs. Ég trúi þvi að ef fólk hefði hugmynd um hversu dýrðlegt það er. þá myndu mun fleiri sækjast eftirslíku. Hafliði Kristinsson „Tvö minnis- stæðustu bænasvörin“ Það er einkum tvennt sem mér kemur til hugar. Annað skeði þegar ég var 7 — 8 ára gamall. Það var mjög vinsælt hjá okkur krökkunum i Þykkvabænum að fara á sandfjörurnar sem lágu svona 2 — 3 kílíómetra frá bænum- Oft var hægt að finna þar alls konar dót, en mesta sportið var ef maður rakst á flöskuskeyti. Ég vil taka það strax fram að það var mjög sjaldgæft að maður fyndi skeyti þarna. Svo einn daginn fórum við Ási, elsti bróðir minn, ásamt frænda okkar. fram á fjörur og þegar við vorum komnir alveg fram að sjó, ákváðum við Ási að biðja Guð að hjálpa okkur að finna flöskuskeyti. Við krupum því niður í sandinn og báðum ein- falda bæn. Síðan gengum við nteð- fram ströndinni og innan klukku- líma vorum við allir búnir að finna flöskuskeyti. Þetta fannst okkur öll- um merkilegt. Minnisstæðasta bænasvarið a mínum „eldri árum“ fékk ég í vetur þegar Guðrún dóttir mín var með ' eyrunum. Hún varþá ekki orðin eins árs. Ég var á Bibliuskóla í Banda- ríkjunum í veturogfrá þvíviðhjónin komum út, í byrjun ágúst, þurftum við að fara ntcð hana til læknis, að meðaltali einu sinni í viku, til að fá handa henni meðul við kvefi og eyrnaverk. Svona gekk þetta frant t lok október. Þá sagði læknirinn okkur að þetta gengi ekki lengur. Ef svona héldi áfram gæti innra eyrað skemmst og Guðrún tapað heyrn- Hann sagði að það eina sem hægt væri að gera væri að selja rör í eyrun a henni til að þurrka upp innra eyrað. I Ameríku er þetta mjög dýr aðgerð og þareð við höfðum ekki mikil fjárráð voru góð ráð dýr. Við tókum okkur meiri tíma en áður og lögðum Guð- rúni fram fyrir Droltin. Við gerðum eins konar samning við hann. Við vissum um tvær fjölskyldur sem voru í fjárþröng. Við hétum á Drottin að ef hann læknaði Guðrúni, ætluðum við að gefa hvorri fjölskyldu um sig 500krónurfyrir jólin en það varca '/4 af kostnaði við aðgerðina. Þegar við fórum aftur til læknisins var innra eyrað hreint og þurrt og Guðrún hefur ekki fcngið í eyrun síðan. Eru liðnir um 7 mánuðir síðan þetta gerðist.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.