Afturelding - 01.04.1982, Page 17

Afturelding - 01.04.1982, Page 17
w SEM HVARF! dæmin þar sem varfærnisleg orð hafa leitt til sundurþykkju og vináttuslita og þegar hinir kristnu hafa átt í hlut hafa þau orðið til þess að fólk hefur fráhverfst trúna. Hvað er þá til ráða, spyrð þú eflaust. Ég viðurkenni að ég hef baktalað vini mína, logið upp á þá og öfundað, í stað þess að samgleðjast þeim yfir velgengni þeirra. Ég hef komið af stað ill- indum og valdið beiskju í hjört- um margra. Hvað get ég gert? Jesús gefur okkur svarið: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Þetta boðorð kemur næst hinu mesta allra boðorða: Þú skalt elska Drottin Guö þinn. í kærleikanum er ekkert sem heitir hatur, beiskja, öfund, bakmælgi. Af trú, von og kærleika er kær- leikurinn mestur. Hann sigrar allt. Kærleiki Krists slípar til okkar mannlegu bresti. Með því að temja sér að líkja eftir Jesú Kristi og kærleika hans verður maðurinn ný sköpun. Þá verður „Maðurinn sem hvarf“ ekki ein- ungis fyrirsögn í blaði sem ætlað er að vekja áhuga lesandans á efni greinar, heldur táknmynd upp á rógberann sem lét af sinni illu breytni og ákvað þess í stað að sækjast eftir kærleika Krists. Og það sem mikilvægara er: Hefðir þú undir venjulegum kf'ngumstæðum hlýtt með ákefð á slúður um náunga þinn og jafnvel prísað þig sælan (sæla) fyir upplýsingarnar og skundað s'ðan í næsta hús og slúðrað þar áfram yfir kaffibolla? Ef þú ert einn (ein) þeirra sem ferð í heimsókn til vina þinna til þess síðan að rægja þá við aðra vini þína, þá er þér vissara að endurskoða hug þinn. Þetta á við um alla menn og þá ekki síst hina kristnu. Maðurinn er breiskur og honum getur orðið á, en bak- mælgi og öfund á ekki heima í herbúðum kristinna. Þau eru ófá Matthias Ægisson er blaðamaður við Aftur- eldingu og Bamablaðið og hefur gegnt því starfi frá 1. júní 1981. Hann er siglfirskur að upp- runa, en hefur átt lög- heimili í Reykjavík síð- astliðin tvö ár.

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.