Afturelding - 01.04.1982, Qupperneq 18
Berdreymi:
Talar Guð í draumum?
Á nokkrum stöðum í Biblíunni
er greint frá því að Guð hafi talað
til manna í draumum, segir í
greinargerð sænsku rannsóknar-
stofnunarinnar í trúarfélags-
fræði, og fólk er hvatt til að senda
inn frásagnir af draumförum.
Guð opinberaðist Salómon (I.
Konungabók 3:5) og Jósef
(Matteus 2:22). Jakob sá himna-
stiga og heyrði raust Guðs í
draumi (I. Mósebók 28:12). Frá
því er sagt að kona Pílatusar hafi
liðið í draumi vegna Jesú (Matte-
us 27:1).
Biblían lýsir því mörgum
draumum, sem í minnum voru
hafðir. Margar slíkar frásagnir
eru til frá okkar tímum.
Skömmu áður en Abraham
Lincoln var myrtur, dreymdi hann
merkilegan draum. Augljóslega
vildi hann sem minnst um draum-
inn tala, en hann fékk ekki gleymt
honum.
Berdreymi
En svo spurði hann vin sinn
spurningar, sem kom upp um
hugsanir forsetans. Hann spurði
þannan góða vin, hvort hann
hefði nokkurn tíma hugsað um
frásagnir Biblíunnar af ber-
dreymi.
— Nú líta flestir á drauma
sem markleysu, nema þá helst
gamlar konur og ástfangnar
stúlkur, sagði Lincoln. En ef
maður trúir raunverulega Biblí-
unni, þá verður maður einnig að
trúa því að æðri máttur hafi op-
inberast fólki þessara tíma í
draumum.. .
— Hvers vegna ert þú að
Abraham Lincoln
hugsa um þetta nú? spurði frú
Lincoln. Þá greindi forsetinn frá
merkilegum draumi. í draumn-
um fannst honum hann ganga
um Hvíta húsið, þar til hann kom
inn í eystri salinn. Þar stóðu her-
menn vörð um svarthjúpaða
kistu. Hann hafði spurt hver hinn
látni væri og svarið var:
— Forsetinn, hann var myrt-
ur.
Skömmu síðar (14. apríl 1865)
gerðist það að forsetinn var
myrtur í Ford-leikhúsinu í
Washington. Leikari einn skaut
forsetann í stúku hans, stökk síð-
an niður á sviðið og hneigði sig
fyrir áhorfendum.
Dauði Kennedys
í bók einni, sem gefin var út í
Svíþjóð fyrir nokkrum árum
„Mellan dröm och verlighet“
(Askild & Karnekull) segir frá
því að seint að nóttu hins 22.
nóvember 1963, hafi sími hringt í
vaktherbergi í Hvítahúsinu.
Leyniþjónustumaður svaraði
símanum. Æst kvenmannsrödd
baðst afsökunar á ónæðinu, á
þessum tíma sólarhrings, en
kvaðst hafa dreymt draum, sem
hún yrði að segja starfsliði
Hvítahússins frá. Vaktmaðurinn,
sem var vanur alls konar skringi-
legum símtölum, hlustaði áhuga-
laus.
— Mig dreymdi að forsetinn
væri myrtur í Dallas. Ég er viss
um að þetta var berdreymi. Getið
þið varað hann við — getið þið
komið í veg fyrir að hann fari
þangað ...
Ekki er vitað til þess að skila-
boðin hafi komist til forsetans.
Líklega frétti hann aldrei af þessu
símtali. Enda hefði hann tæplega
farið að breyta ferðaáætlun sinni,
John F. Kennedy
þótt honum hefði verið sagt af
draumi konunnar.
Um það bil tíu stundum síðar,
kl. 12:30 daginn eftir—hljómaði
skothvellurinn í Dallas og John