Afturelding - 01.04.1982, Blaðsíða 22

Afturelding - 01.04.1982, Blaðsíða 22
MMl® Ari Guðmundsson: I dag er náðardagur Mig langar að hverfa 10 ár aftur í tímann, rétt um og eftir hvítasunnu 1972. Ég minnist þess að ég fór á samkomu í fríkirkj- unni og þegar henni lauk var farið fylktu liði upp í hús K.F.U.M. og K. við Amtmanns- stíg, og á leiðinni var sunginn, Guði til dýrðar, söngurinn Hal- lelúja. Ekki man ég svo glöggt hvað fram fór þarna, en skömmu síðar var ég staddur á annarri samkomu og hún var í Bústaða- kirkju — þar var mér helst minnisstæður ungur sænskur maður. Hann sagði: „Jesús gaf okkur aðeins eitt boðorð, að við skyldum elska hvert annað á sama hátt og hann elskaði okkur.“ Þetta snart mig á sér- stakan hátt. Skömmu síðar fór ég á samkomu í Fíladelfíu og eftir samkomuna var mér ásamt fleira fólki boðið að koma í hús í Kópavogi, — þar var margt fólk samankomið og mikið sungið. Síðan var spurt, hvort einhverjir vildu taka á móti Jesú. Ég gaf mig fram og það var beðið fyrir mér. Þetta kvöld tel ég að ég hafi tekið á móti Jesú og frelsast fyrir hans náð, því ég varð var við seinna um kvöldið, þegar ég var kominn heim, að ég hafði á einhvern hátt breyst og einnig fannst mér allt umhverfið vera breytt, himinn- inn skærari og allt inni í herberg- inu mínu bjartara. Jesús er veg- urinn, sannleikurinn og lífið og enginn kemur til föðurins nema fyrir hann. Ég lofa Guð, faðir Drottins vors Jesú Krist, sem með mikilli miskunn sinni hefur endurfætt oss til lifandi vonar, fyrir Jesúm Krist sem er hinn eini meðalgangari milli Guðs og manna. Fyrir hans blóð erum við hólpin orðin, ef við trúum að Jesús sé Kristur. Við erum þannig ekki keypt með forgengilegum hlutum eins og gulli eða silfri heldur með dýrmætu blóði Jesú Krists, hins réttláta. Ég er kross- festur með Kristi, sjálfur lifi ég ekki framar, heldur lifir Kristur í mér. Það eru til tvær leiðir, önnur er sú að trúa á nafn Jesú Krists og fylgja honum og helga honum líf sitt. Þá leið vil ég velja og ég vona að þú sem lest þessar línur viljir líka velja þá leið, hafir þú ekki þegar valið hana. Hin leiðin er að hafna Kristi Jesú, en sú leið ligg- ur til eilífrar glötunar, því að sá sem afneitar syninum afneitar föðurnum. Þetta er ákaflega al- varlegt mál því Guð elskar okkur öll sem ævarandi elsku og þráir að allir menn komist til þekking- ar á honum. Hann er mjög lang- lyndur, en einn dag kann lang- lyndi hans að ljúka og þá gengur dómur yfir þennan heim. En áður kemur Jesús í skýjum him- ins með mætti og mikilli dýrð og tekur heim sitt fólk, þá sem eru viðbúnir og hafa olíu á lömpum sínum. Þá munum við sjá hann eins og hann er og vera með honum alla tíma. Þá munum við fagna með dýrlegum og óum- ræðilegum fögnuði. í dag er náðardagur, enn er hægt að vinna sálir fyrir Drottin, en það kemur nótt, þegar enginn getur unnið. Guð gefi mér náð til að vaka og biðja og vera reiðu- búinn þegar kallið kemur og þér sem lest þessar línur. Fyrir þér bið ég til Guðs að þú megir vera tilbúinn þegarJesús kemuraftur, að þú megir vera með þeim skara sem verður hrifinn upp til himins og fær að lofa lambið um alla eilífð, hann sem gaf líf sitt á krossi til þess að þú mættir lifa. Guð blessi þig ríkulega í Jesú nafni. Ari Guómundsson

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.