Afturelding - 01.04.1982, Page 27
Stjórnmálalegar skoðanir foreldra
minna og Þorgils, féllu mjög vel
saman. Síðar var Þorgils starfsmaður
Rafveitunnar í Eyjum og hafði þann
starfa árum saman að lesa af öllum
niælum í kaupstaðnum. Þorgils var
ákveðinn bindindismaður, söngelsk-
ur og söng bæði í Kirkjukór Landa-
kirkju og Vestmannakór undir stjórn
Brynjólfs heitins Sigfússonar kaup-
mannsogorganista. Nú var Séra Nils
Ramselíus kominn til Eyja og vann
hann hugi og traust fólksins er
kynntist honum. Fljótt fengu flestir
að vita deili á honum. Þar á meðal
Þorgils, er heyrði þetta beint af vör-
um móður minnar, sem þá var ný-
skírður meðlimur í Betelsöfnuð-
inum.
Þorgils flutti séra Jes Gíslasyni á
Hóli þær fréttir að nú væri kominn
alvöru-prestur i Betel. Hvorki hálf-
né kvart-prestur. Þess skal og getið
að núverandi eigandi og ábúandi,
með stórri fjölskyldu sinni, að Hóli,
er Hjálmar Guðnason frá Vegamót-
um í Eyjum.
Um áratugi setti séra Jes svip sinn
á bæjarlíf í Eyjum. Hann var með
hávaxnari mönnum. Mikill ræðu-
maður og var ávallt með á manna-
mótum eins og Þjóðhátíð. Séra Jes
var „goodtemplar“ og starfaði mikið
að bindindismálum til mikillar
blessunar fyrir yngri og eldri. Hann
var sóknarprestur í prestaköllum
sunnanlands, þráði alltaf Eyjar og
fór þangað. Gerðist hann trúnaðar-
maður í miklum umsvifum fyrir-
tækja Gísla Johnsen og sfðar barna-
kennari við Barnaskólann í Eyjum.
Séra Jes ákvað að kanna hvort
sögnin um Ramselíus væri rétt. Hitt-
ust þeir brátt á förnum vegi. Séra Jes
heilsar kollega sínum og kynnir sig
sem „pastor emeritus." Jafnframt
býður hann séra Ramselíusi í heimili
sitt til kaffidrykkju, á vissum degi og
stundu. —
Hér fer ekkert milli mála. Séra Jes,
góður kennari minn, greindi sjálfur
frá því sem eftir fylgir. Tilefni kaffi-
drykkjunnar á Hóli, var ekki aðeins
gestrisni þeirra hjóna, séra Jes og
konu hans, heldur skyldi nú úr því
skorið, hvort hér væri um ekta guð-
fræðing að ræða, eða kvartara eins
og hinir voru nefndir.
Ættargripur var í eigu fjölskyld-
unnar. Bikar, með áletrun á einu af
fornmálum Biblíunnar. Séra Þór-
hallur biskup hafði visiterað Eyjarog
þýtt og lesið áletrunina á bikarnum.
Þar við bættist svo þekking og
menntun séra Jes.
Gesturinn og húsfaðirinn voru
báðir ræðnir og fór vel á með þeim.
Óvænt og snögglega réttir séra Jes
bikarinn að séra Ramselíusi og
bendir á það sem grafið er á bikar-
inn. Orð fyrir orð les gesturinn forn-
málið og stemmdi það allt við út-
leggingu Þórhallar biskups. Meira
þurfti séra Jes ekki. Vingott var með
þeim uppgjafaprestunum úrþessu og
mundu báðir hvor annan fram á
elliár.
Árið 1955 var haldið alheimsmót
Hvítasunnumanna í Stokkhólmi.
Vorum við þar mörg frá íslandi.
Hjónin Gyða og Nils buðu okkur til
miðdegisverðar. Spurði húsfaðirinn
margs úr Eyjum og þá um séra Jes.
Notaði ég tækifærið og spurði um
fyrstu kaffidrykkju hans að Hóli í
Eyjum og bikarinn umskrifaða. Jú,
jú, séra Ramselíus mundi það allt
saman.
„Veistu hvers vegna þú varst beð-
inn um að lesa áletrunina á bikarn-
um?“
,,Nei,“ svaraði Ramselíus um hæl.
„Letur bikarsins átti að skera úr
um hvort þú værir al-prestur eða
kvart-prestur.“
Séra Ramselíus hló hjartanlega og
hafði gaman af.
Er rétt að segja um kristna menn,
að þeir séu hálfir eða kvart í trú eða
þjónustu. Ekki ef þeir eru heil-
steyptir. En um menntun má mæla
máli einkunnastigans i fjórðungum,
þriðjungum eða helmingum. Um
hinn almenna kristna mann, í samtíð
sinni, segir Símon Pétur í I. Péturs-
bréfi, 2:9:
„Þér eruð útvalin kynslóð, kon-
unglegt prestafélag, — til þess að þér
skulið víðfrægja dáðir Hans.“
Æðstuprestar og fræðimenn Gyð-
inga komust að raun um að postular
Jesú Krists væru „ólærðir menn og
leikmenn." En það voru mennimir
sem Jesús útvaldi öðrum fremur til
þess að flytja fagnaðarerindið með
sér.
Með mikilli virðingu og djúpri
lotningu, þá er mér ljúft að minnast
Islandsvinarins og trúboðans séra
Nils Ramselíusar. Mynd hans fyrir
hugarsjónum mínum er slík, að þar
fór maður er stóðst prófið við skóla-
bekk, en umfram allt í skóla lífsins.
Einar J. Gíslason.
Orð og
breytni
í dómkirkjunni í Lúbeck er
gömul altaristafla, þar sem þetta
er skráð: „Drottinn Kristur talar
þannig til vor:
Þér kallið mig meistara -
og spyrjið mig ekki
Þér kallið mig ljósið —
og sjáið mig ekki
Þér kallið mig veginn -
ogfylgið mér ekki
Þér kallið mig lífið —
og práið mig ekki
Þér kallið mig vitran -
og heyrið mig ekki
Þér kallið mig fagran -
og elskið mig ekki
Þér kallið mig ríkan —
og biðjið mig ekki
Þér kallið mig sannorðan -
og trúið mér ekki
Þér kallið inig göfugan -
og pjónið mér ekki
Þér kallið mig almáttugan -
og dvrkið mig ekki
Þér kallið mig réttlátan -
og óttist mig ekki
Þótt dæmdir þér verðið -
pá undrist pér ekki. “