Afturelding - 01.04.1982, Blaðsíða 28

Afturelding - 01.04.1982, Blaðsíða 28
ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDA« ERLENDAR FRÉTTIR - Að minnsta kosti 38 þjóðlönd, í hverj- um helmingur jarðarbúa býr, hafa bann- að kristniboð innan landamæra sinna. Oddamenn kristniboðs hvetja því kristni- boða til að verða „sérfræðinga". Sum þessara lokuðu landa eru opin fyrir sér- fræðiaðstoð og þiggja að fá lækna, verk- fræðinga og kennara til starfa. Mörg Mú- hameðstrúarlönd greiða vel fyrir slíka aðstoð. CL582 Kaþólsku biskuparnir í El Salvador hafa i sameiginlegu hirðisbréfi auglýst eftir fósturforeldrum fyrir 100 000 böm. Þessi börn eru munaðarlaus vegna borg- arastyrjaldarinnar í landinu. Biskuparnir skrifa, að verði þessum börnum ekki sinnt, þá leiði það til mikilla unglingavandamála siðar meir. Aðeins „heilbrigt fjölskyldulíf" getur leitt landið aftur til friðar. Hið kristna hjónaband getur orðið, vegna fordæmis makanna, til grundvallar nýrri samfélagsskipan, segir í niðurlagi biskupabréfsins. EH 1582 Fyrsta sinni frá stofnun Kínverska al- þýðulýðveldisins 1949, hefur Peking-út- varpið sagt frá kristinni skirn. Sagt var frá því er 46 létu skírast í Shanghai og að í fimm kirkjum, sem leyft var að starfa eftir lagabreytingu 1979, hafi 240 verið skírðir. Það fylgdi með í frétt Peking-útvarpsins að aðeins ein kirkja væri i Kína. „Hreyf- ing Þrí-sjálf Föðurlandsvina." Einnig starfa óskráðar húskirkjur og á þeirra vegum voru 4452 skírðir árið 1980 í sjö héruðum sunnan Yangtse-árinnar. EH 1582 Japönsk leirmunagerð. sem hefur 5000 starfsmenn, býður þeim óvenjuleg hlunnindi. Kyoto fyrirtækið hefur orðið sér úti um grafhýsi, sem rúmar 2000 verkamenn ásamt fjölskyldum þeirra. Talsmaður fyrirtækisins sagði: „Við til- heyrunt öll einni fjölskyldu, svo það er eðlilegt að við höldum hópinn, einnig eftir dauðann." Eternity 382 Meira en ein milljón kristinna manna í Austur- og Vestur-Þýskalandi kom á hverju kvöldi til bæna í heila viku í janúar. Það var Evangelíska sambandið, sem stóð að baki þessari bænaviku, sem ERLENDAR FRÉTTIR haldin var á 4.600 stöðum í Þýskalandi, beggja vegna járntjaldsins. Mikil þátttaka var af ungu fólki. Forsvarsmenn bæna- vikunnar skýra þessa miklu aðsókn með því að fólk finni að ráðamenn séu að missa tökin á heimsmálunum. Jesús Kristur sé máttugur að grípa inn og leysa vanda mannanna. Charisma 482 Leiðtogar þriggja lútherskra kirkju- deilda í Bandaríkjunum stefna að sam- einingu kirkjudeildanna árið 1988. Sam- kvæmt áætlun þeirra munu „the Lutheran Church in America", „the American Lutheran Church“ og „the Association of Evangelical Lutheran Churches" greiða atkvæði á þingum sín- um í september um sameiningartillög- urnar. Aftur verða kosningar um samein- inguna 1984 og 1986. Ef allt fer að óskum leiðtoganna hefur hin nýja kirkjudeild göngu sína 1. janúar 1988. Þá sameinast 5,5 milljónir Lútherstrúarfólks undir einn hatt og verður kirkjan þar með þriðja stærsta kirkjudeild mótmælenda í Bandaríkjunum. CL482 „Vinátta okkar þróaðist í einlæga ást“ segir Joni Eareckson, og ljómar af ham- ingju. Hún er hæfileikaríkur rithöfundur (höfundur bókarinnar ,,JONP‘), mynd- Joni ásamt tilvonandi eiginmanni sínum. listarmaður, leikkona og stjómandi Joni & Friends. Nú ætlar hún, 3. júlí næst- komandi, að giftast Ken Tada, 35 ára gömlum kennara og íþróttaþjálfara. Hann þjálfar m.a. unglinga sem keppa á Olympíuleikum fatlaðra. Eftir vígsluna í Grace Community Church, munu þau hjónakorn búa í sérhönnuðu heimili Joniar í Woodland Hills í Californíu. Joni, sem hefur vcrið lömuð í fimmtán ár, óskar eftir fyrirbæn trúaðra. Hún sagði: „Hjónaband er stórt skref fyrir hvem og einn. En þegar maður er fatlaður, þá bætast við ýmis vandamál og hindranir, sem verður að yfirstiga. Við viljurn meina að þessi vandamál styrki trúnaðartraust og samvinnu með okkur. Við álítum að þær séu til góðs fremur en hitt.“ CL582 Rúmanska leynilögreglan ryðst inn i íbúðir þeirra, sem sakaðir eru um að dreifa Biblium. Íbúarnir eru barðir og persónulegir munir gerðir upptækir. Minnir þetta á aðfarir nasista, meðan þeir voru upp á sitt versta. Heimili Silviu Ciota og Costel Georgescu i Búkarest var rannsakað í fimrn og hálfan tíma. Átta aðrir meðlimir Bræðrasafnaðarins voru yfirheyrðir og eru undir stöðugu eftirliti. Afbrotið: Biblíudreifing! CL582 Sameinuðu Bibliufélögin hafa gefið út nýjar tölur um Bibliuþýðingar í vcröld- inni. I hcild er Biblían til á 277 tungu- málum, Nýja tcstamenntið á 518 tungu- málum og ritningarhlutar á 1,739 tungum. CL582 Sama dag og byltingarleiðtoginn í Eþíopíu hélt ræðu um trúfrelsi, voru fjórir leiðtogar Mennoníta kirkjunnar hand- teknir. Hingað til hafa a.m.k. 15 bygging- ar í eigu lúthersku „Mekane Yesus“ kirkjunnar verið teknar eignarnámi. Stjómvöld stefna augljóslega að því að hindra blómlegt kristilegt starf í landinu. CL582 Nýlega gaf forlagið „Oxford Press" út uppsláttarrit um stöðu kristindómsins í heiminum. „The World Christian Encyclopedia" var skrifuð á 14 árum og verkinu stýrði enskur kristniboði og rit- höfundur David B. Barrett. Honum til hjálpar voru 21 meðritstjórar og ráðgjaf- ar, auk 500 aðila, sem veittu upplýsingar um aðstæður víða um heim. Margt forvitnilegt er að finna í verki þessu. Um aldamótin síðustu töldust aðeins 0,2% jarðarbúa trúlausir, eða guð- leysingjar. Nú teljast 20% jarðarbúa í þeim hópi. Þriðjungur jarðarbúa aðhyllist kristna trú. Hvítasunnumenn eru fjöl- mennastir mótmælenda. Þrátt fyrir margskonar mótlæti hefur kristindómur- inn náð lengra á þessari öld, en nokkru sinni. Mikil aukning í Biblíuútgáfu og þýðingum hefur orðið, kristilegar út- - ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDA^

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.