Good-Templar - 01.01.1897, Page 6

Good-Templar - 01.01.1897, Page 6
2 konur, að ef vér að eins höfum góðan vilja, þá getura vér útvegað blaðinu svo marga kaupendur, að það svari kostnaði að gefa það út, eða að minnsta kosti, að kostn- aðurinn við útgáfu þess verði ekki ofvaxinn kröptum stórstúkunnar. í því trausti að enginn liggi á liði síuu í þessu efni, leggjum vér út í þetta fyrirtæki, sem vér vonum að hver góður bindindisvinur álíti skyldu sina að styrkja, raeð því að kaupa sjálfur blaðið og útvega því kaupend- ur og með því að senda blaðinu stuttar og gagnorðar greinir um bindindismálið, en bindindisfélögin með því að senda blaðinu skýrsiur, að minnsta kosti einu sintii á ári, um hag félaganna sjálfra og um bindindisástand- ið í hverri sýslu. Allir liættir! »Það er ekki orðið neitt gaman að fá sér í staup- inu«, sagði gamall drykkjumaður fyrir nokkrum árum, »það eru allir hættir að »vera með«, og Jón . . . smiður hættur lika«. Hann fann það, að timarnir höfðu breyzt og mennirnir með; kunningjarnir voru hættir að styðja búðarborðið, tala um »landsins gagn og nauðsynjar*, og fá sér þess á milli hálfpela af brennivíni eða »kisu«, • til þess að væta kverkarnar og liðka talfærin; liann sá fáa menn drukkna á götunum, og mætti engum sem bauð upp á »einn gráan«; honum fannst enginn vilja lengur »vera með«, lagði því sjálfur árar í bát og hætti að drekka. Fáir eru þeir, sem hafa fetað í hans fótspor, að því er hið síðasta atriðið snertir, þó allur almenningur sé sömu skoðunar og hanu um það, að drykkjuskapurinn sé að mestu horfinn hér á landi, og það jafnvel í sjálf- um höfuðstaðnum. Það er að vísu satt, að rnikil breyt- ing hefir á hinum síðasta áratug orðið á þessum þjóðlesti frá því sem áður var, en hins vegar er langt frá því, að allir séu hættir að drekka. Auðvitað er sú tíð horfin, þegar hver sölubúð í kaupstað var jafnframt brennivíns- knæpa, þar sem allir drukku ófeimnir; þegar brennivíns

x

Good-Templar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.